Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Freyja Þórisdóttir skrifar 19. september 2026 21:20 Það er notast við bæði þyrlur og dróna í leit að hvítháfnum sem og líki mannsins sem varð fyrir barðinu á honum. Mynd er af annarri strönd í Ástralíu og tengist málinu ekki beint. Getty Maðurinn sem lést í hákarlaárás undan ströndum Ástralíu í vikunni hefur verið nafngreindur og nú hefur leyfi fyrir því að veiða og drepa hvítháfinn sem banaði honum verið gefið út. Enn er leitað að líki mannsins en málið hefur vakið mikla athygli enda umdeilt að gefa út svokallaða „catch-and-kill“ skipun þar sem hvítháfurinn er friðuð tegund.
Hinn 63 ára gamli Greg O´Neill lést í gærmorgun, þann 18. september, eftir að um 2,5 metra langur hvítháfur réðst á hann. Vitni lýstu því hvernig hann flengdist til í sjávarmálinu þegar hákarlinn reif hann til og frá en annar maður sem var á sundi ásamt O´Neill komst lífs af, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Leit stendur enn yfir Árásin átti sér stað á vinsælu Sorrento-baðströndinni norður af borginni Perth í Ástralíu en nærliggjandi strendur hafa verið lokaðar síðan í gærmorgun og hafa yfirvöld sagt að þær verði það áfram á meðan leit að hákarlinum stendur yfir. Samkvæmt staðarmiðlim er um að ræða aðra hákarlaárásina á svæðinu í þessari viku og er þetta sú þriðja sem veldur dauðsfalli í ríkinu á þessu ári. Þá hafi atvikið endurvakið umræðu sem vaknar reglulega í Ástralíu og snýr að því hvernig tryggja megi öryggi strandgesta. Í frétt BBC er vitnað í yfirlýsingu sem fjölskylda Gregs O'Neill sendi frá sér en þar skrifa þau að að þau séu harmi slegin vegna þessa hræðilega harmleiks. „Greg elskaði hafið og var þekktur sem mikill sundmaður, íþróttaunnandi, duglegur starfsmaður og almennt örlátur og fyndinn maður.“ Leyfilegt að drepa hákarlinn Það hafi þegar safnast mikið magn af blómvendi og kertum á vettvangi en fjöldi vitna hefur tjáð sig um þá hræðilegu sjón sem blasti við strandgestum. Haft er eftir Jackie Jarvis, sjávarútvegsráðherra í Vestur-Ástralíu, að hún hefði tekið það „óvenjulega skref“ að gefa út skipunina um að það mætti veiða og drepa dýrið eftir að hákarlinn sást af lögreglunni á laugardagsmorgun. Talið sé að þetta sé í fyrsta sinn í tíu ár sem slík skipun hafi verið gefin út á svæðinu en Jarvis hafi einnig greint frá því að notkun dróna og merkinga yrði aukin til að vernda strandgesti.
Dýr Ástralía Hafið Tengdar fréttir Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist. 14. júní 2026 10:56 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist. 14. júní 2026 10:56