Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar 20. september 2026 17:03 Umræðan um verðbólgu og hátt vaxtastig hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði. Þetta er í raun óboðleg staða fyrir bæði fólk og fyrirtæki og við viljum öll sjá trúverðugar aðgerðir stjórnvalda til að vinda ofan af ástandinu og vinna að raunverulegum árangri. Stéttarfélög og atvinnulífið stigu jákvæð skref með stöðugleikasamningunum vorið 2024 með það að markmiði að ríki og fleiri aðilar myndu sameinast í að ná efnahagslegum stöðugleika á Íslandi næstu árin. Þar er um að ræða bæði göfugt og gott markmið og ég hef fulla trúa á að góður vilji hafi verið og sé enn til staðar hvað það varðar. Því miður hefur verkefnið ekki gengið eftir. Spila þar bæði utanaðkomandi þættir og rangar ákvarðanir hér á landi sitt hlutverk. Stríð, róstur eða aðrir utanaðkomandi þættir geta snögglega haft áhrif á efnahag hér á landi líkt og annarsstaðar. Því er brýnt að stjórnvöld bregðist hratt og örugglega við með mótvægisaðgerðum sem einhverju skila. Engum dylst að mikilvægt er að hið opinbera dragi úr útgjöldum, falli frá skattahækkunum og hækkun gjaldskrár. Með minni útgjöldum er líka hægt að ná hallalausum fjárlögum og með lægri sköttum er auðveldara að stækka hina umtöluðu “köku” sem er til skiptanna. Þetta eru gömul sannindi og ný. Ljós í myrkrinu Þrátt fyrir erfiða stöðu og skrítin skilaboð til vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og atvinnulífsins í fjárlögum 2027 er ekkert sem segir að við getum ekki snúið hlutunum til betri vegar. Við þurfum bara að róa saman í sömu átt; ríki, sveitarfélög, atvinnulífið og vinnumarkaðurinn. Af ummælum má ætla að fulltrúar stéttarfélaga séu tilbúnir til samtals um að kjarasamningar haldi ásamt því að fyrirtæki hafa mörg tilkynnt um frestun hækkana. Vonandi koma fleiri tilkynningar um slíkt á næstunni. Sveitarfélagið Árborg steig fram í vor og tilkynnti að dregið yrði úr hækkun gjaldskrár og í sumar var tilkynnt um lækkun og niðurfellingu byggingarréttargjalds og fleira. Fleiri hafa stigið slík skref, svo sem Kópavogsbær, Reykjanesbær, Fjarðabyggð, Ölfus og fleiri. Slíkt á að koma sér vel fyrir bæði fjölskyldur og framkvæmdaraðila. Allt eru þetta jákvæð skref og ljós í myrkrinu en það lifir ekki nema ríkið komi með í baráttuna. Ég beini orðum mínum til ríkisstjórnar Íslands, annarra sveitarfélaga, atvinnulífsins og vinnumarkaðarins að draga úr hækkunum fyrir næsta ár og raunverulega sameinast um að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Við getum þetta í sameiningu! Höfundur er bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bragi Bjarnason Árborg Efnahagsmál Seðlabankinn Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar