Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson og Viktor Yngvi Ísaksson skrifa 20. september 2026 22:13 Hefur þig aldrei langað að hverfa aftur til fortíðar, þar sem þér var frjálst að leika þér, klifra, stökkva og eins enginn væri morgundagurinn? Nú eða bjóða börnunum þínum upp á slíkt hið sama. Nú eru fáir staðir sem bjóða upp á slíkt frelsi og stefnir Reykjavíkurborg á að losa okkur við enn einn þeirra, stað sem byggður hefur verið upp af hugviti öflugra einstaklinga sem létu ekki mótlæti stoppa sig. Við erum að sjálfsögðu að vísa í Parkour-skúrinn sem hefur verið hjarta parkour-menningar á Íslandi frá stofnun hans. Þetta er að sönnu eini staðurinn sem býður upp á að stunda parkour við raunaðstæður innanhúss. Með þrotlausri sjálfboðaliðavinnu og einstaklingsframtaki aðstandenda Parkour skúrsins hafa verið haldin námskeið og æfingar fyrir börn, ungmenni og fullorðna ásamt því að halda bæði mót og viðburði samhliða því að byggja upp fyrstu og einu innanhúss parkour-aðstöðu landsins. Nú hefur Reykjavíkurborg sett stólinn fyrir dyrnar og hyggst drepa niður þetta einstaka einstaklingsframtak. Halda mætti að þeim hugnaðist ekki jaðaríþróttir líkt og Samfylkingunni. Við hvetjum núverandi meirimeiri- og minnihluta í Reykjavík til að endurskoða þessar framkvæmdir á Gufunesi eða að öðrum kosti koma til móts við iðkendur og bjóða þeim húsnæði á öðrum stað við svipaðar aðstæður. Það eru mikil verðmæti og vinna sem fer forgörðum er húsnæðið og innviðir skúrsins rifnir. Að öðrum kosti hvetjum við þig, kæri lesandi, til þess að skrifa undir og leggja þar með Parkour-samfélagi Íslands lið. Undirskriftarlistinn er hér. Höfundar eru frumkvöðlar Parkour á Íslandi, afreksmenn og iðkendur til margra ára og einlægir áhugamenn um íþróttina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Reykjavík Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur þig aldrei langað að hverfa aftur til fortíðar, þar sem þér var frjálst að leika þér, klifra, stökkva og eins enginn væri morgundagurinn? Nú eða bjóða börnunum þínum upp á slíkt hið sama. Nú eru fáir staðir sem bjóða upp á slíkt frelsi og stefnir Reykjavíkurborg á að losa okkur við enn einn þeirra, stað sem byggður hefur verið upp af hugviti öflugra einstaklinga sem létu ekki mótlæti stoppa sig. Við erum að sjálfsögðu að vísa í Parkour-skúrinn sem hefur verið hjarta parkour-menningar á Íslandi frá stofnun hans. Þetta er að sönnu eini staðurinn sem býður upp á að stunda parkour við raunaðstæður innanhúss. Með þrotlausri sjálfboðaliðavinnu og einstaklingsframtaki aðstandenda Parkour skúrsins hafa verið haldin námskeið og æfingar fyrir börn, ungmenni og fullorðna ásamt því að halda bæði mót og viðburði samhliða því að byggja upp fyrstu og einu innanhúss parkour-aðstöðu landsins. Nú hefur Reykjavíkurborg sett stólinn fyrir dyrnar og hyggst drepa niður þetta einstaka einstaklingsframtak. Halda mætti að þeim hugnaðist ekki jaðaríþróttir líkt og Samfylkingunni. Við hvetjum núverandi meirimeiri- og minnihluta í Reykjavík til að endurskoða þessar framkvæmdir á Gufunesi eða að öðrum kosti koma til móts við iðkendur og bjóða þeim húsnæði á öðrum stað við svipaðar aðstæður. Það eru mikil verðmæti og vinna sem fer forgörðum er húsnæðið og innviðir skúrsins rifnir. Að öðrum kosti hvetjum við þig, kæri lesandi, til þess að skrifa undir og leggja þar með Parkour-samfélagi Íslands lið. Undirskriftarlistinn er hér. Höfundar eru frumkvöðlar Parkour á Íslandi, afreksmenn og iðkendur til margra ára og einlægir áhugamenn um íþróttina.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun