Viðskipti innlent

Jóhanna tekur við sem for­stjóri

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jóhanna Klara Stefánsdóttir tekur við sem forstjóri Rafals af valdimar Kristjónssyni.
Jóhanna Klara Stefánsdóttir tekur við sem forstjóri Rafals af valdimar Kristjónssyni. Rafal

Valdimar Kristjónsson mun í október láta af störfum sem forstjóri Rafals ehf. eftir fimmtán ára starf hjá fyrirtækinu. Jóhanna Klara Stefánsdóttir tekur við af Valdimar. 

Í tilkynningu frá Rafal segir að Valdimar muni áfram koma að rekstri félagsins sem stjórnarmaður og starfa með nýjum forstjóra og framkvæmdastjórum.

„Undir stjórn Valdimars hefur velta og umsvif félagsins stóraukist og hefur Rafal komið að fjölmörgum umfangsmiklum verkefnum í íslenskri orku-, atvinnuvega- og innviðauppbyggingu. Sá vöxtur byggir fyrst og fremst á öflugu og metnaðarfullu starfsfólki. Hjá félaginu starfa í dag um 170 manns og fjölmargir rafvirkjar og rafveituvirkjar hafa lokið sveinsprófi hjá Rafal á liðnum árum,“ segir í tilkynningunni. 

Jóhanna hefur síðastliðinn áratug gegnt starfi sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. 

„Fram undan eru fjölmörg spennandi verkefni hjá Rafal sem við hlökkum til að takast á við. Við njótum þeirra forréttinda að starfa með kraftmiklum viðskiptavinum sem treysta okkur fyrir stórum og krefjandi verkefnum í orku- og innviðauppbyggingu um land allt og á þeim grunni byggjum við áframhaldandi vöxt félagsins. Ég hlakka til að taka við keflinu og leiða þessa vinnu áfram með okkar öfluga starfsfólki,“ er haft eftir henni í tilkynningunni. 

Rafal var stofnað í Búðardal árið 1983 og hóf starfsemi í 30 fermetra bílskúr. Í dag er félagið eitt stærsta rafverktakafyrirtæki landsins og sinnir þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða um land allt frá höfuðstöðvum sínum í Hafnarfirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×