Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar 22. september 2026 08:31 Nýlegar uppsagnir í ráðuneytum senda skilaboð um að stjórnvöld séu ábyrg og hiki ekki við að ganga á undan með góðu fordæmi þegar þau boða víðtækar aðhaldsaðgerðir. Stjórnarráðið er þó ekki eins fjölmennt og ýmsir virðast halda og í raun undirmannað á ýmsum sviðum. Uppsagnir og niðurlagning starfa í dómsmálaráðuneytinu í síðustu viku þar sem fækkað var um sex stöður þýddi það að starfsfólki fækkaði um 8%. Það er mikil blóðtaka. Þegar fækkað er í ráðuneytum hverfa verkefnin ekki enda er Stjórnarráðið ekki óskilgreind yfirbygging eða fitulag. Verkefnum er þá dreift á færra fólk sem veldur aukinni pressu á þau sem eftir verða en kannanir hafa sýnt að starfsfólk Stjórnarráðsins er nú þegar undir miklu álagi. Afgreiðslutími getur lengst, stofnanaminni hverfur, minni tími verður í greiningar- og undirbúningsvinnu og aukin hætta verður á mistökum. Sérþekking byggist upp á löngum tíma með reynslu af málaflokkum, löggjöf, stofnanasamstarfi og samskiptum við Alþingi, sveitarfélög og alþjóðlegar stofnanir. Slík þekking og reynsla verður ekki endurheimt svo glatt. Fagleg og öflug stjórnsýsla á að tryggja samfellu þegar ríkisstjórnir koma og fara. Veik stjórnsýsla hefur minni getu til að veita slíkt faglegt aðhald, undirbúa mál vandlega og tryggja jafnræði. Það er ekki sérhagsmunamál ríkisstarfsmanna að verja þessa getu. Það er almannahagsmunamál. Óvissan hefur áhrif langt út fyrir þann hóp sem missir starfið. Þegar störf eru lögð niður og viðvarandi aðahaldskröfur eru á lofti vaknar spurning hjá starfsfólki um það hver verður næstur. Slíkt óöryggi er niðurdrepandi og veikir starfsanda, starfsmannavelta eykst og erfiðara verður að halda í hæft fólk. Raunveruleg umbótavinna hefst á verkefnum og markmiðum, ekki á fyrirfram ákveðnum fjölda stöðugilda. Þegar starfsfólk Stjórnarráðsins hefur ekki undan að sinna verkefnum sínum vegna mannfæðar getur ríkið neyðst til að kaupa fokdýra utanaðkomandi ráðgjöf til að leysa verkefni sem áður voru unnin innan stjórnsýslunnar. Reikningurinn hverfur ekki, hann færist aðeins milli liða og þá verður ætlaður sparnaður að engu. Stjórnsýslan á að vera gagnrýnin á eigin starfsemi og opin fyrir umbótum. Breytingar verða þó að hafa skýran tilgang og byggjast á faglegu mati. Að fækka fólki er ekki sjálfkrafa umbót. Að flytja verkefni til annarra, auka álag og kaupa síðar ráðgjöf er ekki sparnaður. Höfundur er formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun