Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. september 2026 13:41 Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Vilhelm Stjórn Samtaka atvinnulífsins vill að núverandi kjarasamningar haldi út samningstímann. Það sé farsælast fyrir þróun verðlags og vaxta. Hins vegar hafna þau viðbrögðum við forsendubresti kjarasamninganna sem feli í sér frekari kostnaðarauka.
Þegar verðbólga mældist 5,6 prósent í ágúst opnaðist heimild til að segja upp stöðugleikasamningunum svokölluðu þann 1. september þar sem forsendur samningsins voru brostnar. Bæði stéttarfélögin og Samtök atvinnulífsins hafa heimild til að segja upp samningunum. Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að fulltrúar þeirra hafi fundað með aðilum gildandi kjarasamninga og stjórnvöldum eftir að forsendubresturinn varð ljós. „Afstaða SA er skýr. Við viljum að kjarasamningarnir haldi út samningstímann og stöndum við þær umtalsverðu launahækkanir sem fram undan eru. Viðbrögðin við forsendubrestinum geta hins vegar ekki verið meiri kostnaður sem eykur verðbólgu og heldur vöxtum háum. Jafnframt þurfum við að ráðast að rót vandans og styrkja umgjörð vinnumarkaðarins,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóri SA, í tilkynningunni. Stjórnin kom sér saman um fimm áherslur sem kynntar voru formönnum og fulltrúum Eflingar, Starfsgreinasambands Íslands, Samiðnar, VR, Landssambands verslunarmanna og fagfélaganna á fundi í dag. Í fyrsta lagi sé farsælast að kjarasamningar haldi gildi sínu, í öðru lagi að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum og í þriðja lagi að ekki verði samið um frekari kostnaðarauka. Muni SA þar með ekki samþykkja viðbragð við forsendubresti sem felur í sér frekari kostnaðarauka, þar á meðal hækkun launa. Fjórða áherslan er að ekki verði samið um ný vinnumarkaðstengd réttindamál og sú fimmta að styrkja þurfi umgjörð vinnumarkaðsins. Að þeirra mati er löngu tímabært að aðilar vinnumarkaðsins og stjórnvöld hefji formlegt samtal um umbætur á íslenskum vinnumarkaði. „Það er að mati SA ein meginforsenda þess að verðbólguvæntingar hjaðni.“ Þriðjungur geri ráð fyrir fækkun starfsfólks Við ákvörðunina hafi stjórn SA tekið mið af viðkvæmri stöðu efnahagslífsins og versnandi rekstrarhorfum fyrirtækja. Vísað er í könnun Gallup fyrir SA og Seðlabanka Íslands en niðurstöður hennar sýndu að væntingar stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins til næstu sex mánaða hafi ekki verið lægri frá árinu 2018. 34 prósent fyrirtækja gera ráð fyrir fækkun starfsfólks næsta hálfa árið á meðan níu prósent búast við fjölgun. Fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum gera ráð fyrir minni hagnaði í ár heldur en á liðnu ári. Launakostnaður hafi mikil áhrif og telja stjórnendur það vera ástæðuna fyrir hærra verði. Við undirritun langtímakjarasamninganna frá 2024 hafi atvinnulífið gengið að ystu mörkum. Síðan þá hafi launahækkanir orðið meiri en samningar kváðu á um og á sama tíma hafi verðmætasköpun staðið undir kostnaði. SA telur markmið kjarasamninganna vera óbreytt en það eru minni verðbólga, lægri vextir og aukinn kaupmáttur. „Við stöndum við samningana. Næsta verkefni er að styrkja umgjörð vinnumarkaðarins,“ er haft eftir Bjarna.
Kjaramál Atvinnurekendur Verðlag Vinnumarkaður Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Sjá meira