Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Emil Ey­dal

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Emil Eydal er tíu ára.
Emil Eydal er tíu ára.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Emil Eydal Haraldssyni sem er tíu ára.

Síðast er vitað um ferðir Emils á Melabraut á Seltjarnarnesi um klukkan hálf átta í morgun. Hann er nemandi í Grandaskóla.

Emil var klæddur í dökkbláa Nike-úlpu með tvær rendur á ermum og græn stígvél. Hann er skolhærður og bláeygður.

Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Emils eða vita hvar hann er að finna eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×