Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. september 2026 21:08 Hvað íslenska sendinefndin gerði liggur ekki fyrir. Getty Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.
Mótmælin hófust um leið og Netanjahú gekk að ræðustólnum. Fulltrúar fjölmargra ríkja risu úr sætum sínum. Á meðan heyrðust bæði mótmælaköll og fagnaðarlæti úr salnum, þar sem stuðningsmenn forsætisráðherrans klöppuðu honum lof í lófa. Khalilur Rahman, forseti allsherjarþingsins, kallaði ítrekað eftir því að fundarmenn þögnuðu en það tók nokkra stund að koma á ró í salnum. Þegar Netanjahú loks tók til máls voru fjölmörg sæti auð. „Siðferðilegir hugleysingjar“ Forsætisráðherrann brást við mótmælunum með því að hvetja þá sem enn sátu í salnum en væru sama sinnis og þeir sem höfðu gengið út til að fara einnig. „Ef hér eru enn einhverjir siðferðilegir hugleysingjar sem ekki hafa yfirgefið salinn, vinsamlegast gerið það núna,“ sagði Netanjahú við upphaf ræðu sinnar. Benjamín Netanjahú lét baulið ekki á sig fá.Getty Palestínska sendinefndin hjá Sameinuðu þjóðunum hafði áður hvatt fulltrúa aðildarríkjanna til að yfirgefa salinn í sameiningu þegar Netanjahú tæki til máls. Tilgangurinn væri að sýna Netanjahú og ríkisstjórn hans að önnur ríki vildu ekki eiga aðild að þjóðarmorði, stríðsglæpum og ólöglegu hernámi Palestínu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fulltrúar ríkja ganga úr salnum til að mótmæla Netanjahú. Fjölmargir fulltrúar gerðu slíkt hið sama á allsherjarþinginu í september í fyrra, þegar forsætisráðherrann gagnrýndi meðal annars þá ákvörðun nokkurra vestrænna ríkja að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Leiðtogar þakkað fyrir sig í einkasamtölum Í ræðu sinni í dag hafnaði Netanjahú ásökunum um að Ísraelar hefðu framið þjóðarmorð á Palestínumönnum á Gasaströnd og sagði þær mestu lygi aldarinnar. Hann varði jafnframt hernaðaraðgerðir Ísraela gegn Íran og sagði ákvörðunina um að ráðast á landið hafa verið eina þá auðveldustu sem hann hefði tekið. Netanjahú sagði Ísraela ekki aðeins hafa verið að verja eigið land heldur einnig fjölmörg þeirra ríkja sem hefðu nú sent fulltrúa sína úr salnum. Hann fullyrti að leiðtogar margra þessara ríkja hefðu þakkað honum í einkasamtölum fyrir aðgerðirnar gegn kjarnorkuáætlun Írana. Tómlegt var um að litast í salnum.Getty Á síðasta ári komst sjálfstæð rannsóknarnefnd á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna að þeirri niðurstöðu að ísraelsk stjórnvöld og herafli hefðu framið þjóðarmorð á Palestínumönnum á Gasaströndinni. Ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað niðurstöðunni. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf jafnframt út handtökuskipun á hendur Netanjahú í nóvember 2024 vegna gruns um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð. Sú handtökuskipun felur ekki í sér sakfellingu og tekur ekki til ákæru um þjóðarmorð. Abbas mátti ekki koma Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ávarpaði allsherjarþingið fyrr í dag en þurfti að gera það með fyrirfram uppteknu myndskeiði frá Ramallah á Vesturbakkanum. Bandarísk stjórnvöld höfðu synjað honum og öðrum háttsettum palestínskum embættismönnum um vegabréfsáritun til að sækja þingið í New York. Hann sagði Palestínumenn ekki ætla að yfirgefa heimaland sitt eða sætta sig við að aðrir tækju ákvarðanir um framtíð þeirra. Þá ítrekaði hann kröfu sína um tveggja ríkja lausn á deilu Ísraela og Palestínumanna. Sæti ísraelsku sendinefndarinnar voru auð á meðan Abbas flutti ræðu sína.
Sameinuðu þjóðirnar Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira