Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar 26. september 2026 13:01 Ég fékk nýlega ábendingu frá skóla um að barn mitt mætti einungis vera með vatn að drekka í skólanum og var tilefnið heimagert berjasaft sem barnið hafði tekið með sér. Saftið var búið til úr berjum sem börnin mín höfðu eytt nokkrum klukkutímum í að tína sjálf í rigningu nokkrum dögum áður. Ég svaraði kennaranum að ég ætlaði ekki að banna börnunum mínum að taka þetta saft með sér á meðan það væri til - en þetta snýst í raun mjög lítið um berjasaft. Ábendingin hitti á atriði sem hefur pirrað mig lengi varðandi skólann og sem ég hef ítrekað heyrt um frá börnunum mínum: að það virðast ekki gilda sömu reglur og sömu kröfur fyrir alla. Í sumum tilvikum eru reglurnar strangar og börnunum gert að fylgja þeim á meðan í öðrum tilvikum virðist nánast allt mega ganga. Þegar þetta gerist aftur og aftur hættir málið að snúast um einstakar undanþágur og verður að spurningu um það hvort reglur skólans hafi yfirleitt sama vægi fyrir alla. Ég skil fullkomlega að börn með sérþarfir geti þurft stuðning, aðlögun og stundum undanþágur. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt en það er verulegur munur á eðlilegri aðlögun og því að börnin í kring upplifi að ákveðinn hópur þurfi í raun ekki að fylgja sömu grunnreglum og allir aðrir. Mér finnst þetta hafa mjög óheppileg áhrif á börnin. Annars vegar verður þetta ósanngjarnt gagnvart þeim sem ætlast er til að fylgi reglunum. Börn taka mjög vel eftir ósamræmi og sjá þegar eitt barn fær áminningu fyrir hluti sem annað barn virðist komast upp með aftur og aftur, eða þegar ákveðin óvinsæl verkefni eru nauðsynleg fyrir suma, en alls ekki aðra. Hins vegar ýtir þetta undir þá mynd að börn með sérþarfir séu einhvers konar aumingjar sem ekki sé hægt að gera eðlilegar kröfur til. Ég tel það vera mjög óheppilega og jafnvel niðrandi nálgun gagnvart þeim börnum sjálfum. Ég er líka mjög ósáttur við almennt agaástand sem mér hefur verið lýst í skólanum. Eitt barna minna hefur talað um stöðugar truflanir, köll, læti og hegðun sem virðist fá að viðgangast og lýsingarnar eru stundum þannig að manni finnst þetta fremur hljóma eins og sirkus en námsumhverfi. Börn sem mæta, haga sér vel og reyna að sinna náminu eiga rétt á starfsfriði og athygli kennara og þau eiga ekki stöðugt að þurfa að bera kostnaðinn af því að önnur börn fái að trufla kennslu eða umhverfið í kringum sig. Mín börn eru ekki alltaf englar, en ég tek sjálfur mjög alvarlega ef ég fæ skilaboð um að börnin mín hafi truflað kennslu eða valdið öðrum ónæði og ég geri kröfu til þeirra um að þau virði kennarann og rétt annarra barna til vinnufriðar. Þess vegna finnst mér líka eðlilegt að ætlast til þess að skólinn geri sambærilegar grunnkröfur til allra barna eftir því sem mögulegt er. Þar komum við aftur að berjasaftinu. Ég á mjög erfitt með að taka alvarlega harða línu um að nákvæmlega vatn og ekkert annað megi vera í brúsa, þegar miklu stærri og mikilvægari reglur virðast ekki vera framkvæmdar með samræmdum hætti og það er erfitt að útskýra fyrir barni hvers vegna innihald drykkjarbrúsa sé regla sem verði að fylgja nákvæmlega, þegar sama barn upplifir dag eftir dag að mun veigameiri reglur um hegðun, verkefni, truflun og tillitssemi séu í reynd mjög mismunandi eftir því hver á í hlut. Ef skólinn ætlast til þess að foreldrar og börn taki reglur hans alvarlega þarf skólinn sjálfur líka að sýna að reglur, mörk og kröfur hafi raunverulegt vægi. Núverandi staða, eins og ég sé hana, er sú að í gangi eru tvö reglusett sem bregðast hvort með sínum hætti gagnvart báðum hópum og útkoman er slæm fyrir alla. Þau börn sem ætlast er til að fylgi reglunum missa trúna á réttmæti þeirra þegar þeim er framfylgt með svo misjöfnum hætti, á meðan þau sem ítrekað eru undanþegin sömu grunnreglum er ekki sýnd sú virðing að ætlast til af þeim sambærilegrar ábyrgðar og öðrum. Lausnin felst ekki í því að herða reglurnar fyrir annan hópinn eða slaka á þeim fyrir hinn heldur að endurskoða nálgunina í heild þannig að hvert barn, hvort sem það hefur sérþarfir eða ekki, fái bæði þann stuðning sem það þarfnast og þær skýru, sanngjörnu og samræmdu væntingar sem það á skilið. Höfundur er hugbúnaðarsérfræðingur og foreldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Grunnskólar Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar