Fótbolti

Albert ekki meira með ís­lenska lands­liðinu

Aron Guðmundsson skrifar
Albert liggur eftir á vellinum í gær eftir að hafa meiðst
Albert liggur eftir á vellinum í gær eftir að hafa meiðst Vísir/Anton Brink

Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni liðsins í Þjóðadeild UEFA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í gær. Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag.

Þetta hefur Vísir fengið staðfest frá KSÍ en Albert meiddist  í fyrri hálfleik í fyrsta leik Íslands í Þjóðadeildinni í gær við Eistland á heimavelli. Ekki hefur verið staðfest hvaða leikmaður verður kallaður inn í hópinn í hans stað.

Samkvæmt heimildum Vísis fór Albert úr axlarlið í leiknum í gær. Í framhaldinu mun hann svo fara í segulómun þar sem þar sem alvarleiki meiðslanna kemur í ljós. 

Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag þar sem að bíður leikur við heimamenn á þriðjudaginn kemur. Framundan er svo heimaleikur við Búlgaríu eftir tæpa viku og verkefninu lýkur svo á leik við Eistland ytra þriðjudaginn 6. september. 

Um mikið áfall er að ræða fyrir íslenska karlalandsliðið en Albert er með bestu leikmönnum liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×