Starship á sporbraut í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 28. september 2026 14:38 Starship skotið á loft frá Stjörnustöðinni svokölluðu í Texas. AP/Eric Gay Starfsmönnum SpaceX hefur tekist að koma geimfarinu Starship á sporbraut í fyrsta sinn. Geimfarið hefur þó nokkrum sinnum verið sent kringum jörðina en aldrei eins hátt og það fór í dag. Þar var geimskipið notað til að koma 26 nýjum Starlink-gervihnöttum á braut um jörðu.
Geimskipinu var skotið á loft frá bækistöðvum SpaceX í Texas í dag og heppnaðist geimskotið nokkuð vel, fyrir utan það að svo virtist sem ekki hefði kviknað á nokkrum hreyflum Supher-Heavy hluta geimfarsins. Það er fyrsti hluti samstæðunnar en hann var látinn líkja eftir lendingu á jörðu niðri á Mexíkóflóa. Fyrst eftir að geimskipinu var skotið á loft voru uppi efasemdir um að hægt væri að koma því alveg á sporbraut, eða í um 275 kílómetra hæð, vegna bilunar að minnsta kosti eins hreyfils. Það gekk þó eftir og voru í kjölfarið 26 V3 Starlink gervihnettir settir á braut um jörðu. Þeir eiga að bæta netkerfið SpaceX töluvert. Sjá einnig: Umdeildur gervihnöttur orðinn eitt bjartasta fyrirbærið á næturhimninum Hér að neðan má sjá geimskotið í dag. Liftoff of Starship! pic.twitter.com/40D8bXSkr2— SpaceX (@SpaceX) September 28, 2026 Framtíð SpaceX Starship og eldflaugin Super Heavy eru stærsta samstæða sem byggð hefur verið og var þeim skotið á loft frá stjórnstöð SpaceX í Texas. Geimfarið fór á braut um jörðu en eldflaugin sneri aftur til jarðar og líkti eftir lendingu á Mexíkóflóa. Bæði stig kerfisins eru hönnuð til að geta verið notuð fljótt aftur, eins og SpaceX hefur gert með Falcon-eldflaugarnar. Stæða Super Heavy eldflaugarinnar og Starship er 124 metrar á hæð. Eldflaugin er búin 33 Raptor hreyflum sem brenna metan og fljótandi súrefni. Starship’s Raptor engines ignite during hot-staging separation. Super Heavy boosted back towards its splashdown site in the Gulf of America pic.twitter.com/0DcBz1wayt— SpaceX (@SpaceX) September 28, 2026 Starship á að vera grunnurinn að framtíð SpaceX. Með því að þróa fullkomlega endurnýtanlega eldflaug og geimfar gæti fyrirtækið dregið enn frekar úr kostnaði við geimskot og framkvæmt þau mun oftar en samkeppnisaðilar. Nota á Starship og Super Heavy til að flytja menn og birgðir til tunglsins og jafnvel lengra út í geim með mun minni tilkostnaði en samkeppnisaðilar hafa burði til. Super Heavy has splashed down in the Gulf of America! pic.twitter.com/pEIjC2Aae1— SpaceX (@SpaceX) September 28, 2026 Nú eru vonir bundnar við það að næst þegar Starship verður skotið upp seinna á þessu ári verði reynt að lenda geimfarinu aftur í Texas. Elon Musk, stofnandi, segir að ef það heppnast verði mögulega reynt að skjóta sama geimfari aftur út í geim í lok ársins eða byrjun þess næsta. Þróun Starship hefur ekki gengið eftir vonum hjá SpaceX en vonast er til þess hægt verði að nota geimfarið til að lenda mönnum á tunglinu í náinni framtíð.
Bandaríkin Geimurinn SpaceX Elon Musk Tækni Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira