Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Lovísa Arnardóttir skrifar 30. september 2026 07:29 Myndina sýnir mikill uppsöfnun á suðausturlandið, sunnanverða Austfjörðum, Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökull Veðurstofan Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur fram að talsverðri til mikilli úrkomu sé spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld. „
Mjög mikil uppsöfnuð úrkoma getur valdið auknu afrennsli, grjóthruni og skriðuföllum sem geta truflað samgöngur,“ segir í tilkynningunni. Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis í dag. Í tilkynningu kemur einnig fram að í vikunni gangi nokkrar lægðir yfir landið sem flytji með sér hlýtt og rakt loft. Búast megi við talsverðri til mikilli úrkomu frá þriðjudegi fram á fimmtudagsnótt, einkum á Suðausturlandi, við Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum. Einnig getur rignt talsvert á Snæfellsnesi. Vegna hlýinda muni langstærstur hluti úrkomunnar falla sem rigning, einnig til fjalla. Leysing frá jöklum geti þar að auki aukið afrennsli í ám og lækjum á áhrifasvæðunum. Talsverð úrkoma féll víða á Suðausturlandi og Austurlandi í síðustu viku samkvæmt tilkynningunni og er bent á að vatn sem safnast hefur fyrir í jarðvegi og lausum jarðlögum geti aukið þrýsting í hlíðum og þar með líkur á jarðhreyfingum á borð við grjóthrun og skriður. Eins og fram kemur að ofan eru gular viðvaranir í gildi vegna mikillar úrkomu. Í viðvöruninni kemur fram að búast megi við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem auki hættu á flóðum og geti valdið tjóni og raskað samgöngum. „Mikil uppsöfnuð úrkoma fram á aðfaranótt föstudags eykur líkur á skriðuvirkni, eins og grjóthruni og aurskriðum, sérstaklega á svæðum þar sem landslag er bratt. Skriður geta fallið á vegi og raskað samgöngum með litlum fyrirvara,“ segir í tilkynningunni. Vegfarendur hvattir til að sýna gát Þá hvetur Veðurstofan vegfarendur sem þurfa að aka vegi sem liggja undir bröttum hlíðum til að sýna aðgát á ferðinni og fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Almenningur er jafnframt hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.
Veður Færð á vegum Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira