Umræðan

Verð­lagning hluta­bréfa enn hóf­leg í sögu­legu sam­hengi

Brynjar Örn Ólafsson skrifar

Hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands (OMXI15) var 19,8 í september og lækkaði úr 20,7 í ágúst. Hlutfallið er því áfram undir sögulegu meðaltali sem nemur nærri 21.

Hefðbundið hlutfall virðis og hagnaðar (VH-hlutfall), miðað við staðvirtan hagnað síðustu tólf mánaða, hækkaði hins vegar úr 15,2 í 15,8. Hlutfallið er undir meðaltali frá árinu 1995, sem er um 16,8. Að raunvirði lækkaði OMXI15 um 5,3% milli mánaða á meðan hagnaður vísitölunnar lækkaði meira eða um 8%.

Fyrrgreind hlutföll gefa til kynna að arðsemiskrafa til hlutafjár sé nálægt 6% ef miðað er við hagnað síðustu tólf mánaða, en um 5% ef miðað er við hagsveifluleiðréttan hagnað. Á sama tíma hækkaði ávöxtunarkrafa fimm ára óverðtryggðra ríkisskuldabréfa um 13 punkta í september og stóð í 7,4% í lok mánaðar. 

Verðbólguálag miðað við sama meðaltíma hefur farið hækkandi á ný og fór úr 3,86% í 4,03% milli mánaða. Samkvæmt Hagstofu Íslands jókst innlend verðbólga úr 5,6% í ágúst í 5,9% í september. Til samanburðar nam nýjasta mæling ársverðbólgu í Bandaríkjunum 3,4% í ágúst en ávöxtunarkrafa fimm ára bandarískra ríkisskuldabréfa var ríflega 5% í lok september.

Litið til alþjóðlegs samanburðar, lækkaði CAPE-hlutfall bandarísku S&P 500 vísitölunnar lítillega úr 41,1 í ágúst í 40,6 í september, samkvæmt gögnum bandaríska hagfræðingsins Robert J. Shiller. CAPE-hlutfall íslensku Úrvalsvísitölunnar er því nú undir eigin sögulegu meðaltali, á meðan sambærilegt hlutfall S&P 500 stendur umtalsvert hærra.


Höfundur er hagfræðingur.

Nánar um CAPE:

Frá árinu 2016 hefur hagfræðingurinn Brynjar Örn Ólafsson með aðstoð og gögnum frá Nasdaq Iceland tekið að sér að reikna og birta mánaðarlega opinberlega tímaraðir fyrir svokallað CAPE (e. Cyclically Adjusted Price to Earnings) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 sem hliðstæðu við útreikninga Dr. Robert J. Shiller fyrir S&P 500 vísitöluna.

Hlutfallið sýnir virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði þeirra félaga sem mynda vísitöluna. Hefðbundið VH-hlutfall miðast við hagnað síðastliðinna tólf mánaða og í þeim tilfellum sem miklar breytingar verða á hagnaði getur reynst vandasamt að átta sig á réttmæti verðlagningar. Í tilfelli CAPE er notast við verðlagsleiðréttan sögulegan hagnað sem getur gefið vísbendingu um réttmæti verðlagningar á móti hagnaði í eðlilegu árferði.

Fyrirvari: Þessi grein er eingöngu hugsuð til fræðslu og upplýsingagjafar og felur hvorki í sér fjárfestingartillögu né fjárfestingarráðgjöf, né heldur kaup- eða sölutilboð á verðbréfum eða öðrum fjármálagerningum. Greinin er einvörðungu ætluð til að varpa efnahagslegu ljósi á virði hlutabréfa í samhengi við hagsveifluna og tekur hvorki mið af markmiðum, áhættuvilja, fjárhagsstöðu né þörfum fjárfesta.


Tengdar fréttir

Milljarðaút­flæði og áfallið hjá Oculis minnkar slag­kraft hluta­bréfa­sjóða

Einn helsti hlutabréfasjóður Íslandssjóða, sem var með stórt veðmál á Oculis, hefur séð eignir sínar skreppa saman um rúmlega fjörutíu prósent það sem af er ári samhliða miklu útflæði og snarpri gengislækkun. Innlendir hlutabréfasjóðir sem beita virkri stýringu hafa allir átt undir högg að sækja undanfarið en samanlögð afkoma sjóðastýringafélaga stóð nánast í stað á fyrri árshelmingi.

Telur litla veltu og virkni á hluta­bréfa­markaði vera „raun­veru­legt vanda­mál“

Seðlabankastjóri telur minnkandi virkni á íslenskum hlutabréfamarkaði, meðal annars samhliða sífellt meiri samþjöppun lífeyriskerfisins, vera „raunverulegt vandamál“ og segir ástæðu til að ræða hvort stjórnvöld eigi að skapa aukna hvata fyrir almenning til að fjárfesta á markaði. Lífeyrissjóðir séu í eðli sínu langtímafjárfestar og því verði hlutabréfamarkaður þar sem þeir eru ráðandi seint mjög líflegur.

Félögin flest van­metin á markaði sem ein­kennist af biðstöðu og óvissu

Lítil velta, skortur á trú meðal fjárfesta og vaxandi óvissa í alþjóðamálum heldur áfram að setja svip sinn á markaði, að sögn hlutabréfagreinenda, sem segir ekki koma á óvart að almenningur hafi nánast gefist upp á hlutabréfafjárfestingum. Mikill meirihluti skráðra félaga eru samt enn talin verulega undirverðlögð, ekki hvað síst Icelandair.




Umræðan

Sjá meira


×