Erlent

Boðaði ríkis­stjórn á fund vegna mót­mæla nem­enda

Telma Tómasson og Lovísa Arnardóttir skrifa
Myndin er tekin á mótmælum nemenda í Saint Denis nærri París í gær.
Myndin er tekin á mótmælum nemenda í Saint Denis nærri París í gær. Vísir/EPA

Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka.

 Framhaldsskólanemendur hófu að mótmæla skorti á kennurum, lélegu húsnæði, löngum skóladögum á Parísarsvæðinu í síðustu viku og óbærilegum hita í skólastofum í hitabylgju í vor. Mótmælin breiðst hratt út um allt land og kemur fram í frétt franska miðilsins Le Monde að mótmælin hafi haft áhrif í 1.027 af þeim 3.700 skólum sem eru í Frakklandi.

Óeirðalögregla var kölluð til á mótmæli nemenda í Saint Denis nærri París. Vísir/EPA

Eftir því sem fram kemur í The Guardian hópuðust ungmenni saman á meira en 900 stöðum víðs vegar um landið og þurfti að loka 160 skólum í framhaldinu. Vegatálmar voru settir upp á sumum stöðum og fólki meinaður aðgangur að um 30 háskólasvæðum í gær, þar á meðal í París og Marseille. 

Nærri þrjú þúsund framhaldsskólanemar, á aldrinum 15 til 18 ára, hafa verið handteknir frá því að mótmælin hófust, þar af 1.949 á fimmtudaginn, samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Þá kemur fram í frétt Guardian að yfir 300 lögreglumenn og tugir slökkviliðsmanna, kennara og nemenda hafa slasast.

Édouard Geffray, menntamálaráðherra, mun eiga fund með fulltrúum nemenda í dag og þá hafa skólayfirvöld verið hvött til að nýta fjarkennslu til að tryggja öryggi nemenda


Tengdar fréttir

Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Gróður brennur beggja vegna Ermar­sunds

Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×