Klopp býður við rasískum ásökunum Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 13:16 Klopp vill sameina Þýskaland og endurheimta þjóðastoltið frá röngu fólki. EPA/CHRISTOPHER NEUNDORF Fullyrðingar fulltrúa öfgahægriflokksins AfD í Þýskalandi um að landslið Þjóðverja sé ekki nægilega hvítt á hörund fylla landsliðsþjálfarann Jürgen Klopp viðbjóði.
Þónokkrir fulltrúar AfD-flokksins hafa gagnrýnt samsetningu þýska karlalandsliðsins í fótbolta í vikunni eftir slæma byrjun Þýskalands á Þjóðadeildinni. Liðið vann þó 2-0 sigur á Serbíu í München í gær. Í aðdraganda þess leiks var gagnrýni hávær frá þónokkum fulltrúum AfD. Meðal gagnrýnenda var Kay Gottschalk, varaformaður AfD, sem deildi myndum af heimsmeistaraliði Vestur-Þjóðverja frá HM 1990 sem samanstóð af eingöngu hvítum leikmönnum og liði dagsins í dag þar sem þónokkrir hörunddökkir menn voru í landsliði Þjóðverja. Gottschalk skrifaði við myndina á samfélagsmiðlum: „Persónueinkenni, ákveðnar dyggðir og liðsheild eru menningarleg gildi sem þróast á öldum saman og mótast af sameiginlegri sögulegri reynslu.“ Það skýri sumsé slakt gengi liðsins að menn að innflytjendur séu í landsliðinu. Klopp sat fyrir svörum á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Þjóðverja við Serbíu í Þjóðadeildinni. Honum bauð við fullyrðingunum þegar þær voru bornar undir hann. „Það er nákvæmlega engin ástæða til að veita þessu fólki athygli. Þú munt ekki fá mig til að ræða þetta. Ég hef almennt lítinn tíma í mínu daglega lífi fyrir fávitaskap – og enn minna fyrir slíkt á samfélagsmiðlum,“ svaraði Klopp. Gagnrýni sem þessi er ekki ný af nálinni og það ber á henni reglulega þegar þýska liðinu gengur illa á stórmótum, til að mynda eftir EM 2016 og í kringum EM 2024. Klopp hefur talað fyrir einingu þjóðarinnar síðan hann tók við þjálfarastólnum hjá þýska knattspyrnusambandinu. Hann klæddist derhúfu með þýska fánanum á blaðamannafundi þegar hann tilkynnti leikmannahópinn fyrir yfirstandandi verkefni sem á stóð „einn af 83 milljónum“ sem vísar til íbúafjölda Þýskalands. Hann sagði þá á þeim fundi að hann vildi „endurheimta þýska fánann“ og „endurheimta þjóðarstoltið frá röngu fólki“, vísandi til AfD sem hefur aukið fylgi sitt til muna á síðustu misserum.
Þjóðadeild karla í fótbolta Þýskaland Þýski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira