Er katastrófa að vinna ekki í dag? Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 12:31 Arnar Gunnlaugsson var spurður hvort það yrði katastrófa að vinna ekki leik dagsins. Getty/Alex Nicodim Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segir mikilvægt fyrir leikmenn liðsins að mæta einbeittir til leiks gegn Búlgaríu í dag og hleypa engu vanmati að.
Búlgaría hefur byrjað riðilinn í Þjóðadeildinni illa en er þó aðeins þremur stigum frá íslenska liðinu eftir tvo leiki. Spilamennska liðsins hefur þó verið áhyggjuefni og raunar svo slæm að landsliðsþjálfarinn sagði upp eftir jafntefli á heimavelli við Eista í síðasta leik í kjölfar taps fyrir Lúxemborg á heimavelli. Íslenska liðið átti fínan leik í Lúxemborg í miðri viku og vann 3-0 sigur eftir slakt 1-1 jafntefli við Eista hér heima fyrir sléttri viku. Arnar var spurður á blaðamannafundi fyrir leik í gær hvort það væri katastrófa að vinna ekki leikinn í dag. „Persónuleg katastrófa, já. Ég meina, ég held bara að við þurfum að bera virðingu fyrir þessu landsliðsumhverfi. Þetta er bara erfiður bransi, þó Búlgarar hafi verið svona, hvað á maður að segja, á niðurleið síðustu árin að þá eru margir góðir leikmenn þarna sem geta meitt okkur,“ „Ég held bara svona hugarfar leikmanna skipti miklu máli að vera ekki of miklir töffarar og vera að vanmeta lið Búlgara,“ segir Arnar. Arnar kom þá einnig inn á þjálfaraskiptin en óreyndur þjálfari U19 ára liðs Búlgaríu mun stýra liðinu í dag eftir uppsögn forverans í vikunni. „Maður hefur oft séð svona þjálfaraskipti og þetta getur brugðið til beggja vona í hvora áttina sem er. En ef við mætum af hörku fyrstu mínúturnar og náum að gera góða hluti og náum að þvinga þá niður að þá er svona reynsla mín í þessum bransa að þeir munu kannski brotna fyrr en ella,“ segir Arnar. Blaðamannafundinn frá því í gær má sjá í spilaranum. Spurningin er borin upp eftir tæplega 14 mínútur. Leikur Íslands og Búlgaríu hefst klukkan 16:00 og er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Útsending hefst klukkan 15:20.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira