Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar 5. október 2026 08:46 Að mínu mati eru það fyrst og fremst samskipti og fólkið á vinnustaðnum sem skapa góðan vinnustað. Mannauðurinn er ein mikilvægasta auðlind vinnustaðarins og því skiptir máli að hlúa að honum. Góð vinnustaðamenning, traust, starfsánægja og góð samskipti verða ekki til af sjálfu sér heldur byggjast upp í daglegum samskiptum starfsfólks og stjórnenda. Mikilvægt er að starfsfólk viti til hvers er ætlast af því, hafi skýr verkefni og ábyrgð og fái þær upplýsingar sem það þarf til að sinna starfi sínu. Þegar fólk upplifir traust og virðingu, finnur að á það er hlustað og getur komið skoðunum sínum og ábendingum á framfæri getur það haft jákvæð áhrif á vellíðan þess í starfi. Aðgengilegir stjórnendur, góð samskipti og stuðningur geta þannig haft mikil áhrif á upplifun starfsfólks af vinnustaðnum. Vellíðan starfsfólks snýst ekki eingöngu um líkamlega heilsu heldur einnig um andlega líðan og það vinnuumhverfi sem fólk býr við. Þegar starfsfólk upplifir stuðning, skýr samskipti og virðingu á vinnustað getur það aukið starfsánægju og skapað jákvætt vinnuumhverfi. Rannsóknir hafa sýnt að starfsánægja tengist meiri skuldbindingu og virkni í starfi, sem getur stuðlað að betri frammistöðu og árangri og þannig styrkt samkeppnishæfni skipulagsheilda til lengri tíma. Mikilvægi þessara þátta endurspeglast einnig í MS-rannsókn minni (2026), þar sem ég skoðaði tengsl sorgartengdra einkenna, upplifaðs stuðnings á vinnustað og starfsgetu hjá einstaklingum sem höfðu misst náinn ástvin eða upplifað önnur persónuleg áföll. Alls tóku 342 einstaklingar þátt í rannsókninni. Niðurstöðurnar sýndu sterk neikvæð tengsl milli sorgartengdra einkenna og starfsgetu, þar sem meiri sorgareinkenni tengdust lakari starfsgetu. Jafnframt komu fram jákvæð tengsl milli upplifaðs stuðnings á vinnustað og starfsgetu. Einstaklingar sem upplifðu meiri stuðning greindu frá betri starfsgetu. Niðurstöðurnar benda því til þess að vinnuumhverfið skipti verulegu máli þegar einstaklingar snúa aftur til vinnu eftir missi eða önnur áföll. Vinnuumhverfi og félagslegar aðstæður gegna mikilvægu hlutverki í því hvernig einstaklingar takast á við endurkomu til vinnu eftir krefjandi lífsatburði. Því þarf að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir stuðning og skilning þegar á þarf að halda. Vinnustaðurinn getur þannig skipt sköpum fyrir farsæla endurkomu til vinnu eða, ef stuðning skortir, torveldað endurkomuna. Að hlúa að mannauðinum og velferð hans er því mikilvægur þáttur í árangri fyrirtækja og stofnana til lengri tíma. Heilbrigt vinnuumhverfi, þar sem traust, góð samskipti og stuðningur eru í forgrunni, getur stuðlað að aukinni vellíðan starfsfólks, farsælli endurkomu til vinnu eftir áföll og sjálfbærari þátttöku fólks í atvinnulífinu. Ingunn Eir Andrésdóttir, MSc Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnustaðurinn Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun