Innlent

Opnuðu Arnarnesveg að hluta

Árni Sæberg skrifar
Menn á vegum Vegagerðarinnar opnuðu veginn klukkan 14.
Menn á vegum Vegagerðarinnar opnuðu veginn klukkan 14. Vísir/Sigurjón

Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga.

Í tilkynningu þess efnis frá Vegagerðinni í gær sagði að framkvæmdin við veginn væri langt komin og um mikilvægan áfanga væri að ræða. Gert væri ráð fyrir að framkvæmdum ljúki um mánaðamót nóvember og desember. 

Unnið hefði verið að því að tengja nýju vegamannvirkin inn á núverandi akbrautir sem umferð er á. Það hefði óhjákvæmilega valdið truflun á umferð.

Sigurjón Ólason, tökumaður Vísis, var á vettvangi og myndaði opnun vegarins með dróna. Myndskeið af opnuninni má sjá í spilaranum hér að neðan:


Tengdar fréttir

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×