Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Andri Broddason skrifar 5. október 2026 17:18 Daniil Medvedev var fullur eftirsjá eftir að hann sló bolta í auga áhorfanda. Lintao Zhang/Getty Images Athyglisvert atvik gerðist á opna kínverska mótinu í tennis þar sem Daniil Medvedev mætti Novak Djokovic í undanúrslitum mótsins. Medvedev endaði á því að vera dæmdur úr keppni fyrir að slá boltanum í áhorfanda eftir að hafa tapað stigi.
Medvedev var undir í leiknum þegar atvikið gerðist en Serbinn Djokovic þurfti að vinna aðeins eina lotu til viðbótar til þess að vera tveimur settum yfir í leiknum. Djokovic vann stig sem skoppaði af vegg fyrir aftan völlinn og þar sló Medvedev boltann með pirringi upp í stúkuna. Þar lenti boltinn í auga eins áhorfanda sem ríghélt utan um andlitið og virtist vera sárþjáður. Læknar komu og aðstoðuðu áhorfandann en hann var á endanum færður úr stúkunni til aðhlynningar. Not the ending we expected 😮 @DjokerNole advances to the Beijing final after Medvedev is defaulted whilst down 5-7 3-5 #ChinaOpen https://t.co/Pae5eNrJ6W— Tennis TV (@TennisTV) October 5, 2026 Dómari leiksins ræddi við bæði Medvedev og Djokovic og varð leikurinn ekki lengri þar sem Medvedev var dæmdur úr keppni. Eftir keppnina bað Medvedev áhorfandann afsökunar í viðtali og sá hann eftir gjörðum sínum. „Ég er að reyna að ná í hann ef hann vill fá að ræða málin. Vonandi get ég beðist afsökunar í persónu og séð hver staðan á honum er. Ég bara vona að það sé í lagi með hann, það er það sem skiptir mestu máli,“ sagði Medvedev og virtist þetta hafa verið óviljaverk. Djokovic var feginn að hafa komist í úrslitin en hann fann til með Medvedev. Djokovic lenti í svipuðu atviki á Opna bandaríska risamótinu þar sem hann var dæmdur úr keppni eftir svipað atvik. Hann var þó handviss um að Medvedev hefði ekki gert þetta viljandi.
Tennis Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira