Erlent

Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Christopher Saunders í ágúst þegar hann var sakfelldur fyrir brotin.
Christopher Saunders í ágúst þegar hann var sakfelldur fyrir brotin. AP/Aaron Bunch

Christopher Saunders, biskup í Ástralíu, hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brot gegn tveimur ungum strákum af frumbyggjaættum.

Drengirnir höfðu leitað til hans vegna starfa hans sem biskup og nýtti hann sér stöðu sína til að brjóta á þeim. Hann var ákærður fyrir tvær nauðganir og fjórtán önnur kynferðisbrot en var sakfelldur fyrir eina nauðgun og tólf kynferðisbrot. 

Bauð hann drengjunum tveimur reglulega í hittinga þar sem þeir voru neyddir til að vera berir að ofan og lét þá drekka áfengi. Brotin áttu sér stað á árunum 2010 til 2019. 

Rannsókn á málinu var felld niður árið 2020 en Frans páfi óskaði þá eftir því að hún yrði tekin upp á ný. Kaþólska kirkjan í Ástralíu hefur gefið út að hún muni rannsaka Saunders frekar og hvort hann hafi brotið á fleiri drengjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×