Býður sig fram á móti Infantino Andri Broddason skrifar 7. október 2026 22:15 Ramos Vega ætlar að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA. Daniel Smith/Getty Images Mikil dramatík hefur verið í fótboltaheiminum um hver eigi að taka við af Gianni Infantino sem forseti FIFA. Infantino hefur orðið umdeildur eftir gjörðir hans í kringum heimsmeistaramótið í fótbolta og nú hefur loks fyrsta mótframboð gegn honum verið tilkynnt.
Það er Ramon Vega sem hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til forseta á móti Infantino en kosningar verða í mars á næsta ári. Vega er svissneskur og spilaði á sínum leikmannaferli með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur starfað í fjármálum síðan atvinnumannaferli hans í fótbolta lauk en nú langar hann að vinna við fótbolta og mun því bjóða sig fram til forseta FIFA. Hann tilkynnti framboð sitt í ellefu blaðsíðna bréfi þar sem honum fannst hann vera knúinn til þess að bjarga fótboltanum. „Trú og traust á fótboltaheiminum hafa verið sködduð mikið. Við þurfum að endurbyggja bæði, endurbyggja trúverðugleika FIFA og sameina aftur fótboltafjölskyldu heimsins,“ stóð meðal annars í bréfi Vega. Hann íhugaði að bjóða sig fram á móti Infantino árið 2015 þegar Sepp Blatter sagði af sér. Hann hætti þó við en reyndi aftur árið 2022 en náði ekki að sækja sér nógu mikinn stuðning. Enn er tími fyrir fleiri til þess að bjóða sig fram til forseta en síðasti dagur til þess að tilkynna framboð er 18. nóvember. Kosningarnar verða svo haldnar í mars og eru margir aðdáendur fótbolta sem væru til í að sjá Infantino ekki vera lengur forseti sambandsins.
Fótbolti FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira