Erlent

Margaret Hamilton er látin

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Margaret Hamilton fékk frelsisorðu forsetans árið 2016.
Margaret Hamilton fékk frelsisorðu forsetans árið 2016. GETTY

Margaret Hamilton, tölvunarfræðingurinn sem stóð að baki rannsóknum sem áttu þátt í að koma fyrsta manninum til tunglsins, er látin. Hún varð níutíu ára gömul.

Hamilton stýrði teymi verkfræðinga sem þróaði hugbúnaðinn fyrir Apollo-leiðangra Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og með þeirri vinnu varð hugtakið hugbúnaðarverkfræði til. 

Hamilton fæddist í Indlandi árið 1936 og hóf nám í stærðfræði við Michigan-háskóla árið 1955 en lauk BA-gráðu í stærðfræði við Erlham College árið 1958. Hún flutti síðan ásamt eiginmanni sínum til Boston og starfaði þar hjá MIT-háskólanum til að styðja eiginmanninn á meðan hann lagði stund á laganám.

Hún starfaði hjá MIT frá 1959 fram á áttunda áratuginn og stýrði hugbúnaðarverkfræðideildinni. Það var í þessari deild sem hún leiddi hóp verkfræðinga sem skrifaði og prófaði allan hugbúnað fyrir geimför þeirra Neil Armstrong og Buzz Aldrin.

Ljósmynd þar sem Hamilton stendur við hlið stafla af útprentuðum kóða hefur í gegnum tíðina vakið mikla athygli.

Hamilton stendur hér við hlið kóðans sem var útbúinn fyrir geimferðalagið.MIT

„Ég heillaðist bæði af hugmyndinni sjálfri og því að þetta hafði aldrei verið gert áður. Ég var fyrsti forritarinn sem gekk til liðs við verkefnið og fyrsta konan sem þeir réðu,“ sagði hún í viðtali við Guardian árið 2019.

Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseti, heiðraði Hamilton árið 2016 með Frelsisorðu forsetans fyrir framlag hennar til vísinda og geimferða.

Eftir vinnuna fyrir geimferðalagið nýtti Hamilton sérþekkingu sína til að stofna hugbúnaðarfyrirtæki, til dæmis Hamilton Technologies sem er enn starfandi í Massachusetts. Hamilton lést þann 30. september samkvæmt tilkynningu frá Tækniháskólanum í Massachusetts, þar sem hún starfaði lengi vel. Hún skilur eftir sig eina dóttur, tvö barnabörn og fjögur barnabarnabörn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×