Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. október 2026 08:04 Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs. Vísir/Vilhelm Lóðir sem voru úthlutaðar til annars vegar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi verða afturkallaðar. Málinu var fyrst um sinn frestað eftir að félögin komu af fjöllum.
Til stóð að afturkalla lóðirnar á fundi borgarráðs í september. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagðist hafa sent bréf í sumar til beggja trúfélaganna þar sem þau fengu tækifæri til að mótmæla afturkölluninni en engin bárust andmæli. Þegar fjallað var um málið í fjölmiðlum stigu talsmenn Félags múslima á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar fram og sögðust koma af fjöllum. Hið fyrrnefnda fékk úthlutaða lóð árið 2013 og hið síðarnefnda árið 2009. Engar framkvæmdir eru farnar af stað en samkvæmt reglum borgarinnar eiga framkvæmdaaðilar almennt að hefja framkvæmdir innan þriggja ára og ekki standa lengur en í þrjú ár. Málinu var frestað til að gefa trúfélögunum tækifæri á að skila inn andmælum og var málið aftur tekið upp á fundi borgarráðs í gær. Fresturinn löngu runninn út Í andmælum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar segir að til stóð að hefja framkvæmdir í haust. Þau hafi aldrei fengið bréf frá Reykjavíkurborg um að til stæði að afturkalla lóðina en hafi nýlega klárað allar teikningar. Nú væru þau að bíða eftir leyfi frá borginni sjálfri til að hefja byggingu kirkjunnar. Yfir átta hundruð manns eru meðlimir í kirkjunni og sé núverandi húsnæði þeirra við Öldugötu of lítið. Fulltrúi Félags múslima segir einnig að meðlimir félagsins kannist ekki við að hafa fengið bréf um afturköllun lóðarinnar. Óskað er eftir fresti til andmæla og fundi með fulltrúum borgarráðs vegna málsins. Þrátt fyrir andmælin var lagt til á fundi borgarráðsins að samþykkja drög að svarbréfi Reykjavíkurborgar þar sem lóðirnar eru báðar afturkallaðar. Síðasti frestur sem trúfélögin hafi fengið rann út 1. júlí 2025 fyrir Félag múslima og 4. mars 2022 fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna. „Umtalsverður tími er liðinn frá úthlutun lóðanna og undirritun samninga og hafa framkvæmdafrestir því allir runnið sitt skeið,“ segir í bréfi borgarinnar. Umræddar lóðir eru annars vegar við Suðurlandsbraut 76 og hins vegar við Mýrargötu 21-23.
Reykjavík Skipulagsmál Jarða- og lóðamál Trúmál Borgarstjórn Tengdar fréttir Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum. 17. september 2026 15:38 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum. 17. september 2026 15:38