Innlent

Á­minnti starfs­mann spítalans fyrir að fletta upp sjúkra­skrá konu

Kjartan Kjartansson skrifar
Kona sem starfar á Landspítalanum fletti upp í sjúkraskrá konu níu sinnum frá 2021 til 2024. Hún gat ekki sýnt fram á að hún hefði átt lögmætt erindi í skrána.
Kona sem starfar á Landspítalanum fletti upp í sjúkraskrá konu níu sinnum frá 2021 til 2024. Hún gat ekki sýnt fram á að hún hefði átt lögmætt erindi í skrána. Vísir/Vilhelm

Persónuvernd áminnti starfsmann Landspítalans fyrir að fletta ítrekað upp sjúkraskrá konu án tilefnis. Eftirlitsnefnd sjúkrakráa taldi starfsmanninn hafa brotið persónuverndarlög og lög um ríkisstarfsmenn.

Starfsmaðurinn, sem er kona, fletti sjúkraskrá konunnar upp níu sinnum á rúmlega tveggja og hálfs árs tímabili frá 2021 til 2024. Hún gat ekki sýnt fram á að hún hefði átt lögmætt erindi í sjúkraskrá konunnar.  Í kvörtun kom fram að starfsmaðurinn hefði aldrei komið að meðferð konunnar.

Eftirlitsnefnd um rafræna sjúkraskrá á Landspítala taldi starfsmanninn hafa brotið lög um sjúkraskrár og um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna. Tilkynnti nefndin framferði starfsmannsins til embættis landlæknis og Persónuverndar, að því er kemur fram í úrskurði Persónuverndar í málinu.

Starfsmaðurinn svaraði ekki boði Persónuverndar um að hann tjáði sig við meðferð kvörtunarinnar og skilaði ekki upplýsingum sem stofnunin óskaði eftir.

Persónuvernd féllst á sjónarmið Landspítalans um að starfsmaðurinn bæri sjálfur ábyrgð á uppflettingunum vegna þess að hann hefði farið út fyrir aðgangsheimildir sínar í starfi.

Niðurstaða Persónuverndar var að uppflettingar starfsmannsins í sjúkraskránum samrýmdust ekki persónuverndarlögum. Starfsmaðurinn var áminntur en stofnunin taldi ekki ástæðu til þess að beita hann stjórnvaldssektum..




Fleiri fréttir

Sjá meira


×