Erlent

Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hér á landi hefur enginn verið sektaður fyrir slíkar auglýsingar.
Hér á landi hefur enginn verið sektaður fyrir slíkar auglýsingar. getty

Áhrifavaldar í Noregi og Finnlandi voru nýverið sektaðir fyrir að auglýsa ólögleg fjárhættuspil á netinu. Í Grikklandi eru átján áhrifavaldar til rannsóknar vegna athæfisins. Enginn hefur verið sektaður hér á landi.

Norski áhrifavaldurinn Christian Brennhovd var í sumar sektaður um 120.000 norskar krónur, sem gera um 1,5 milljónir íslenskra króna, vegna ólöglegra auglýsinga á veðmálasíðum. Eftirlitsaðili í Noregi krafðist þess upphaflega að Brennhovd greiddi 615.000 norskra króna í dagsektir en hann kærði ákvörðunina og var upphæðin lækkuð hjá kærunefnd.

Brennhovd hafði flutt til Lettlands og taldi að þaðan gæti hann streymt til fylgjenda sinna í Noregi samkvæmt lettneskum reglum. Norsk stjórnvöld lögðu hins vegar til grundvallar að norsk lög giltu þegar auglýsingunum væri beint að norskum neytendum. Brennhovd talaði bæði norsku í streymi sínu og áhorfendur hans voru helst norskir.

Nokkuð hefur verið fjallað um ólöglegar auglýsingar á fjárhættuspilum og veðmálastarfsemi hér á landi en auglýsingar veðmálafyrirtækisins Coolbet og Epicbet hafa verið áberandi. Hvoruga starfsemina má starfrækja hér á landi.

Enginn sektaður hér á landi

Hér á landi er lagt bann við því að auglýsa veðmálastarfsemi sem hefur ekki starfsleyfi. Bannið kemur fram í b-lið, 1. mgr. 11. gr. laga um happdrætti. Samkvæmt svörum frá ríkislögreglustjóra hefur enginn verið sektaður vegna brota á lögunum frá árunum 2015 til september 2026.

Í svörum ríkislögreglustjóra kemur þó fram að á tímabilinu hafi þrjú brot verið skráð í málaskrá lögreglu og varða lög um happdrætti.

„Tvö brot voru skráð árið 2018 og eitt árið 2021,“ segir í svarinu.

Sektin tók mið af tekjum

Finnskur áhrifavaldur var einnig sektaður fyrir ólöglega markaðssetningu fjárhættuspila á samfélagsmiðlum í sumar. Sá heitir Jouko Kärkkäinen en er þekktur undir nafninu Pottukoira. Hann þarf að greiða 2.480 evrur eða um 340 þúsund íslenskra króna. Fjárhæðin tekur mið af tekjum hans og var honum jafnframt gert að greiða sekt í sjóð til stuðnings þolendum slíkra afbrota.

Grísk stjórnvöld hafa nú til rannsóknar meint brot átján áhrifavalda sem taldir eru hafa auglýst fjárhættuspil án leyfa. Samanlagt eru reikningar áhrifavaldanna með 3,6 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum.


Tengdar fréttir

„Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“

Sálfræðingur og tónlistarmaður segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður.

Kristófer Acox kallar sig glæpamann

Íslenski körfuboltamaðurinn Kristófer Acox hefur verið mikið í fréttum síðustu mánuði en aðallega vegna þess sem hann hefur gert utan vallar. Hann gerir þessa viðburðarríku mánuði upp á samfélagsmiðlum með stuttri en afar sérstakri yfirlýsingu.

Íslenskir unglingar veðja næst mest í Evrópu

Ungmenni á Íslandi veðja næst mest allra í Evrópu, samkvæmt ESPAD-könnuninni sem mældi spilun meðal 15–16 ára nemenda í 37 löndum. Alls segjast 41% íslenskra ungmenna hafa veðjað fyrir peninga á síðustu 12 mánuðum, sem er næsthæsta hlutfallið í Evrópu – aðeins Ítalía er hærri með 45%. Erlend fyrirtæki markaðssetja sig grimmt hér á landi og nota til þess þekkta Íslendinga tengda íþróttaumfjöllun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×