Sport

„Það eru þið og sagn­fræðingar sem skrifið um for­tíðina“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Þorsteinn H. Halldórsson var sáttur með frammistöðu liðsins en næstu skref eru að undirbúa liðið fyrir einvígið gegn Portúgal.
Þorsteinn H. Halldórsson var sáttur með frammistöðu liðsins en næstu skref eru að undirbúa liðið fyrir einvígið gegn Portúgal.

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, var afar sáttur með frammistöðu leikmanna í 5-0 sigri gegn Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland vann einvígið samtals 9-0 og mun liðið mæta Portúgal í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu 2027.

„Mér fannst við byrja leikinn frábærlega. Fyrri hálfleikur var góður heilt yfir og við áttum auðvitað að skora þarna í byrjun, við fengum fullt af færum. Seinni hálfleikur byrjaði líka bara vel. Þannig að frammistaðan heilt yfir í dag fannst mér góð og var fagmannleg,“ sagði Steini á blaðamannafundi eftir leikinn.

Ída Marín Hermannsdóttir og Katla Tryggvadóttir voru öflugar í dag og skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk. Steini var sáttur með framlag nýliðana og leikmanna í leiknum.

„Mér fannst bara framlag allra leikmanna í dag jákvætt og leikmenn að taka jákvæð skref. Ég var ánægður með marga leikmenn sem voru að gera vel og af þeim sem hafa spilað færri landsleiki þá fannst mér þær grípa tækifærið og gera vel.“

Ísland mun spila úrslitaeinvígið gegn Portúgal en Ísland tapaði einmitt gegn Portúgal í hreinum úrslitaleik um sæti á HM árið 2023. Það eru því margir sem vilja hefna fyrir það súra tap.

„Við förum kannski á fimmtudaginn að byrja að skoða Portúgal og fara yfir allt. Það er bara vinna framundan að undirbúa sig undir Portúgal.“

Steini óttast þó ekki að minningar um svekkjandi einvígi liðanna muni hafa áhrif á leikmenn liðsins enda dvelji þau ekki í fortíðinni.

„Hver leikur og hvert einvígi á sitt líf, það þýðir ekkert að dvelja við eitthvað svona. Þetta snýst bara um nútímann og það eru þið [blaðamenn] og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina.“

Að lokum var Steini spurður út í Glódísi Perlu Viggósdóttur sem spilaði sinn 150. landsleik í kvöld.

„Glódís er bara leiðtogi í liðinu og það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hún sé hérna. Hún er bara flottur fyrirliði, flott persóna og líka frábær leikmaður sem er náttúrulega aðalatriðið. En það er líka kostur að vera með leikmann sem er fyrirmynd innan og utan vallar og tekur af skarið í hópnum og er kröfuhörð á alla í kringum sig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×