Sport

„Ég tek því hlut­verki sem mér er gefið“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Diljá skoraði potaði boltanum í netið tvisvar í kvöld.
Diljá skoraði potaði boltanum í netið tvisvar í kvöld. Vísir/Anton Brink

Íslenska kvennalandsliðið sigraði Króatíu, 5-0,  á Laugardalsvelli í kvöld. Diljá Ýr Zomers kom inn af varamannabekknum og lét heldur betur til sín taka þegar hún skoraði tvö mörk á lokamínútunum. Frábær innkoma sem gæti gefið Steina, landsliðsþjálfara,  hausverk þegar kemur að vali á byrjunarliðinu í næsta leik.

„Mér fannst allir mæta með rétt hugarfar inn í leikinn og frá fyrstu mínútu sýndum við að við ætluðum að koma hingað og spila góðan fótbolta og skora fleiri mörk,“ sagði Diljá Ýr Zomers eftir leikinn í kvöld.

Diljá byrjaði leikinn á varamannabekknum en skoraði tvö mörk undir lok leiksins til að innsigla frábæra innkomu.

„Það er oft spurt hvort maður vilji ekki byrja en hvort sem maður fái að koma inn á 60, 70 eða 80 mínútu þá er búið að keyra andstæðinginn niður og þá opnast svolítið meira pláss fyrir mann. Þannig það er alltaf gaman í svona leikjum að koma inn og fá svolítið að leika sér með það.“

Í fyrra marki Diljár var hún dæmd rangstæð en VAR snéri þeim dómi við. Aðspurð hvort hún hafi vitað hvort hún hafi vitað að hún væri réttstæð sagðist hún halda að markið fengi ekki að standa en var svo afar glöð að sjá að markið hafi fengið að standa.

Frammistaða leikmanna var frábær í dag og því ljóst að það gæti verið hausverkur fyrir Steina að velja næsta byrjunarlið. Diljá var þó afar hógvær þegar hún var spurð út í pressuna sem hún kann að hafa sett á Steina með sínu framlagi í kvöld.

„Ég tek því hlutverki sem mér er gefið og reyni að gera það sem best og í dag náði ég að koma inn og setja tvö mörk sem er bara stór plús.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×