Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 16:33 Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir ekkert fjárhagslegt svigrúm hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum. Hvorki liggi fyrir samningur né vilyrði um slík kaup. Vísir/Anton Brink Ekkert fjárhagslegt svigrúm er hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum, segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Hvorki hafi verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku. Hún segir smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans.
Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks. Í fyrri umfjöllun Vísis sagði Guðrún markmiðið vera að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu og létta á heilbrigðiskerfinu. Meðal áherslna væri að veita fólki með langvinna sjúkdóma þjónustu á einum stað. „Við viljum ekki keppa við kerfið, við viljum létta á því,“ sagði Guðrún í skriflegum svörum sínum. Erindi um smáslysaþjónustu Alma segir að eina erindið sem hafi borist vegna verkefnisins hafi komið frá Sjúkratryggingum Íslands í lok september. Það hafi varðað smáslysaþjónustu Litla spítalans sem væri ætlað að draga úr álagi á bráðamóttöku Landspítalans. Erindinu hafi verið svarað fyrir viku. Hún nefnir fjögur atriði sem skipti máli við mat á slíkri þjónustu: niðurstöður skýrslna um bráðaþjónustu, fjárhagsstöðuna hjá Sjúkratryggingum, mönnun opinberrar þjónustu og reglur um opinber innkaup. Segir vandann snúa að útskriftum Alma vísar til tveggja skýrslna, annarrar frá 2022 og hinnar frá nóvember 2024. Hún segir að þar hafi ekki verið mælt með því að slíku úrræði yrði komið á fót. Bráðamóttakan hafi getað sinnt smáslysum. Um sé að ræða 65 komur á sólarhring og þjónustan sé í aðgreindu flæði á þriðju hæð. Hún segir meginvandann hafa tengst því að ekki hafi verið hægt að útskrifa aldraða sjúklinga. Hins vegar sé búið að lyfta grettistaki í að vinna á þeim vanda. Ekkert fjárhagslegt svigrúm Alma segir þá fjárlagaliði hjá Sjúkratryggingum sem tengjast þjónustunni vera í miklum halla. Þar sé því ekkert svigrúm fyrir slíkt úrræði á borð við Litla spítalann. Einnig þurfi að gæta þess að ný þjónusta raski ekki mönnun í opinberri heilbrigðisþjónustu. Alma D. Möller segir meginvanda bráðamóttöku Landspítalans hafa tengst því að ekki hafi verið hægt að útskrifa aldraða sjúklinga. Móttakan hafi hins vegar getað sinnt smáslysum í aðgreindu flæði.Vísir Í annarri skýrslunni hafi verið varað við því að slík úrræði gætu komið niður á mönnun bráðalækna annars staðar. Guðrún sagði í fyrri svörum sínum að markmið aðstandenda væri að laða heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum og halda því í faginu. Þá væru þau þegar byrjuð að ráða starfsfólk frá útlöndum. Þyrfti opið innkaupaferli Ef ríkið vildi ráðast í kaup á slíkri þjónustu segir Alma að fara þyrfti fram opið innkaupaferli samkvæmt útboði eða auglýsingu. Hún greinir jafnframt á milli rekstrarleyfis, sem komi frá embætti landlæknis, og samnings um þjónustukaup og greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Aðstandendur séu ekki komnir með slíkan samning eða vilyrði fyrir honum.
Heilbrigðismál Heilsa Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjúkratryggingar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira