Körfubolti

Tryggvi í aða­hlut­verki í Meistara­deildinni

Sindri Sverrisson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason er lykilmaður hjá Bilbao Basket.
Tryggvi Snær Hlinason er lykilmaður hjá Bilbao Basket. Getty/Dragana Stjepanovic

Tryggvi Snær Hlinason átti stóran þátt í sigri Bilbao Basket á Slavia Prag í Meistaradeildinni í körfubolta í kvöld.

Bilbao vann leikinn með níu stiga mun, 97-86, og skoraði Tryggvi fjögur af átta síðustu stigum liðsins.

Tryggvi endaði næststigahæstur í kvöld með 17 stig en tók líka sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hann nýtti sjö af níu skotum sínum úr opnum leik og þrjú af fimm vítum.

Bilbao var sjö stigum yfir í hálfleik, 42-35, og einnig eftir þriðja leikhlutann, 68-61. Gestunum frá Prag tókst mest að minnka muninn í sex stig í lokaleikhlutanum.

Bilbao hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína í G-riðli og er næsti leikur við Alba Berlín, lið Martins Hermannssonar, eftir tvær vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×