Skoðun

Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum náms­matið

Sævar Þór Helgason skrifar

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að bráðabirgðaákvæði (mál S-193/2026). Samkvæmt þeim fá nemendur sem ljúka grunnskóla vorið 2027 lokaeinkunnir á talnakvarðanum 4–10 í stað bókstafa. Skólarnir eiga að hafa birt endurskoðaðar skólanámskrár eigi síðar en 10. janúar 2027.

Ég tek undir markmið ráðuneytisins um að gera námsmat skýrara, einfaldara og samræmdara. Núverandi einkunnakerfi er ekki hafið yfir gagnrýni og full ástæða er til að endurskoða það. Ég tel að þessar breytingar séu ekki nægilega vel undirbúnar og að við séum að byrja á röngum enda.

Ný tákn, sama námsmat

Breyting á einkunnakvarða er ekki það sama og umbætur í námsmati. Við getum skipt bókstöfum út fyrir tölur án þess að breyta nokkru um gæði þess mats sem býr að baki. Áskoranir varðandi réttmæti, áreiðanleika og samræmi milli skóla verða áfram til staðar, hvaða tákn sem notuð eru.

Samkvæmt tillögunni táknar einkunnin 7 að hæfniviðmiðum hafi verið náð. Einkunnirnar 8–10 eiga að lýsa aukinni dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu hæfni. Hvernig á að tryggja að kennarar um allt land leggi sama skilning í þessi hugtök? Samræmdar reiknireglur um vegið meðaltal og námundun tryggja ekki sjálfkrafa samræmi í faglegu mati. Ef markmiðið er aukið jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja, þarf að sýna fram á hvernig nýr kvarði nær því markmiði.

Námskrá, námsefni og námsmat eru ein heild

Brýnna er að hefja heildstæða endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla og þróa námsmat í samhengi við hana. Það er ekki nóg að skilgreina hvaða hæfni nemendur eiga að öðlast ef kennarar hafa ekki aðgang að fjölbreyttu og vönduðu námsefni sem styður við markmið námskrárinnar. Námsefnið þarf að vera í takt við námskrána og námsmatið þarf að endurspegla þá þekkingu og hæfni sem við viljum að nemendur öðlist. Þar liggja stærri og mikilvægari verkefni en að skipta um einkunnakvarða.

Grundvallarbreytingar eftir að skólaárið er hafið

Skólastarf byggist á langtímaskipulagi. Kennarar skipuleggja kennslu og námsmat með góðum fyrirvara og skólastjórnendur samræma skólanámskrár og starfsþróun. Þegar grundvallarbreytingar eru boðaðar eftir að skólaárið er hafið, með fárra mánaða fyrirvara, skapast óvissa. Þá er hætta á að orka skólanna fari í að uppfylla nýjar kröfur í stað þess að þróa faglegt starf.

Skólunum hafa ekki borist leiðbeiningar eða stuðningsefn auðvelda innleiðinguna. Hver skóli þarf því að túlka breytingarnar á eigin forsendum. Slíkt vinnur beinlínis gegn markmiðinu um samræmi.

Það er heldur ekki nóg að kynna kennurum og skólastjórnendum breytingar eftir að meginákvarðanir hafa verið teknar. Fagfólkið þarf að taka þátt í að móta þær. Slík þátttaka skapar eignarhald, eykur traust. Líkurnar á að breytingarnar skili árangri, verða meiri.

Allir þurfa að koma að borðinu

Kennarasamband Íslands hefur kynnt verkefnið Blásum byr í seglin, þar sem kallað er eftir víðtæku samtali um framtíð íslensks menntakerfis. Þar skapast kjörið tækifæri til að leiða saman alla sem bera ábyrgð á skólastarfi.

Ráðuneytið þarf að hafa frumkvæði og bera ábyrgð á stefnumörkuninni. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gegnir lykilhlutverki, enda ber hún ábyrgð á námsefni og stuðningi við skóla. Sveitarfélögin reka grunnskólana og bera ábyrgð á starfsumhverfi þeirra og fjármögnun. Breytingar á námskrá og námsmati hafa bein áhrif á rekstur skólanna. Kennarar búa yfir reynslu af daglegu skólastarfi og háskólarnir yfir rannsóknaþekkingu og mennta kennara framtíðarinnar. Þessa krafta þarf að sameina í verkefni með skýr markmið, raunhæfa tímaáætlun og nægilegt fjármagn.

Gefum okkur tíma til að gera þetta vel

Ég legg til að fallið verði frá því að innleiða breytingarnar strax á yfirstandandi skólaári. Í staðinn verði hafin markviss og tímasett vinna við heildstæða endurskoðun aðalnámskrár, námsefnis og námsmats, undir forystu ráðuneytisins og í samstarfi við alla þessa aðila.

Þetta er alls ekki ákall um óbreytt ástand. Þetta er ákall um metnaðarfullar breytingar sem byggjast á þekkingu, samráði og skýrri framtíðarsýn. Kennarar og skólastjórnendur eiga ekki aðeins að vera viðtakendur breytinga, heldur virkir þátttakendur í að móta þær.

Við eigum ekki að flýta okkur að breyta því hvernig niðurstöður námsmats eru birtar áður en við höfum komið okkur saman um hvað við viljum kenna. Hvað við viljum meta. Hvers vegna og hvernig. Gefum okkur tíma til að gera þetta vel. Það er í þágu nemenda, kennara og íslensks skólastarfs til framtíðar.

Höfundur er skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði.




Skoðun

Sjá meira


×