Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar 15. október 2026 10:46 Það er óásættanlegt að utanríkisráðherra breyti ímynd íslensku þjóðarinnar út á við og þvert á sjálfsímynd hennar upp á sitt eindæmi. Kynslóðir Íslendinga hafa hingað til litið á sig sem litla, herlausa og vopnlausa þjóð, sem byggir stöðu sína í alþjóðasamfélaginu á friði, alþjóðalögum og friðsamlegum samskiptum. Þetta er ekki hugmynd sem varð til með yfirlýsingu eins stjórnmálamanns, heldur sjálfsmynd sem kynslóðir Íslendinga hafa alist upp við og sem á sér djúpar rætur í sögu þjóðarinnar. Bjarni Benediktsson lýsti þessari sérstöðu Íslands í umræðum um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu. Sú grundvallarhugmynd að Ísland skyldi ekki stofna eigin her og að herleysi landsins væri viðurkenndur þáttur í stöðu þess. Hún hefur jafnframt haldist í opinberri umræðu og stefnumótun langt fram á þessa öld, eins og yfirlýsingar og stefnumótunarskjöl frá árunum 2007 og 2010 bera vitni um. Þegar íslensk stjórnvöld taka nú skref í átt að beinni þátttöku í fjármögnun vopnakaupa fyrir erlenda þjóð verður því ekki litið á það sem einangraða léttvæga fjárhagslega ákvörðun. Hér er um að ræða grundvallarspurningu um utanríkisstefnu Íslands og þá sjálfsmynd sem þjóðin hefur byggt á í áratugi og jafnvel aldir. Það er óþolandi að utanríkisráðherra geti einn og sér, án þess að fyrir liggi skýr og ótvíræð samþykkt Alþingis, tekið ákvarðanir sem fela í sér slíka grundvallarbreytingu á stefnu Íslands og sjálfsmynd þjóðarinnar. Hvað þá að slík breyting sé gerð án þess að þjóðin hafi fengið tækifæri til að ræða hana og taka afstöðu til hennar. Þetta snýst ekki aðeins um afstöðu til Úkraínu eða um það hvernig Íslendingar vilja bregðast við stríðinu þar. Það snýst einnig um lýðræðislega ábyrgð, valdmörk stjórnvalda og rétt þjóðarinnar til að hafa áhrif á grundvallarstefnu landsins. Stuðningur við sjálfstæði og öryggi annarra þjóða þarf ekki sjálfkrafa að fela í sér breytingu á þeirri sjálfsmynd sem Ísland þjóðin hefur byggt á sem herlaus og vopnlaus þjóð. Slík grundvallarbreyting verður ekki réttlætt sem venjuleg ákvörðun utanríkisráðherra. Hún kallar á skýra umræðu, afstöðu Alþingis og lýðræðislegt umboð. Áður en stigið er slíkt skref verður að liggja fyrir hvort Alþingi samþykki breytinguna — og þjóðin verður að fá raunverulegt tækifæri til að segja sitt álit. Utanríkisráðherra er kominn langt út fyrir þau mörk sem bjóðandi eru og að því er virðist eðlilega ákvarðanatöku. Sjálfsvirðingu og grundvallarhugmyndum Íslendinga er boðin birgin af einni manneskju byggt á umboði sem ekki virðist að hún hafi. Færi best á því að hún hyrfi úr því embætti sem hefur gert henni kleyft að leika lausum hala í óþökk þjóðarinnar og jafnvel skaða hana. Höfundur er fjármálahagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Sjá meira
Það er óásættanlegt að utanríkisráðherra breyti ímynd íslensku þjóðarinnar út á við og þvert á sjálfsímynd hennar upp á sitt eindæmi. Kynslóðir Íslendinga hafa hingað til litið á sig sem litla, herlausa og vopnlausa þjóð, sem byggir stöðu sína í alþjóðasamfélaginu á friði, alþjóðalögum og friðsamlegum samskiptum. Þetta er ekki hugmynd sem varð til með yfirlýsingu eins stjórnmálamanns, heldur sjálfsmynd sem kynslóðir Íslendinga hafa alist upp við og sem á sér djúpar rætur í sögu þjóðarinnar. Bjarni Benediktsson lýsti þessari sérstöðu Íslands í umræðum um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu. Sú grundvallarhugmynd að Ísland skyldi ekki stofna eigin her og að herleysi landsins væri viðurkenndur þáttur í stöðu þess. Hún hefur jafnframt haldist í opinberri umræðu og stefnumótun langt fram á þessa öld, eins og yfirlýsingar og stefnumótunarskjöl frá árunum 2007 og 2010 bera vitni um. Þegar íslensk stjórnvöld taka nú skref í átt að beinni þátttöku í fjármögnun vopnakaupa fyrir erlenda þjóð verður því ekki litið á það sem einangraða léttvæga fjárhagslega ákvörðun. Hér er um að ræða grundvallarspurningu um utanríkisstefnu Íslands og þá sjálfsmynd sem þjóðin hefur byggt á í áratugi og jafnvel aldir. Það er óþolandi að utanríkisráðherra geti einn og sér, án þess að fyrir liggi skýr og ótvíræð samþykkt Alþingis, tekið ákvarðanir sem fela í sér slíka grundvallarbreytingu á stefnu Íslands og sjálfsmynd þjóðarinnar. Hvað þá að slík breyting sé gerð án þess að þjóðin hafi fengið tækifæri til að ræða hana og taka afstöðu til hennar. Þetta snýst ekki aðeins um afstöðu til Úkraínu eða um það hvernig Íslendingar vilja bregðast við stríðinu þar. Það snýst einnig um lýðræðislega ábyrgð, valdmörk stjórnvalda og rétt þjóðarinnar til að hafa áhrif á grundvallarstefnu landsins. Stuðningur við sjálfstæði og öryggi annarra þjóða þarf ekki sjálfkrafa að fela í sér breytingu á þeirri sjálfsmynd sem Ísland þjóðin hefur byggt á sem herlaus og vopnlaus þjóð. Slík grundvallarbreyting verður ekki réttlætt sem venjuleg ákvörðun utanríkisráðherra. Hún kallar á skýra umræðu, afstöðu Alþingis og lýðræðislegt umboð. Áður en stigið er slíkt skref verður að liggja fyrir hvort Alþingi samþykki breytinguna — og þjóðin verður að fá raunverulegt tækifæri til að segja sitt álit. Utanríkisráðherra er kominn langt út fyrir þau mörk sem bjóðandi eru og að því er virðist eðlilega ákvarðanatöku. Sjálfsvirðingu og grundvallarhugmyndum Íslendinga er boðin birgin af einni manneskju byggt á umboði sem ekki virðist að hún hafi. Færi best á því að hún hyrfi úr því embætti sem hefur gert henni kleyft að leika lausum hala í óþökk þjóðarinnar og jafnvel skaða hana. Höfundur er fjármálahagfræðingur.
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun