Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. október 2026 06:32 Dómurinn gæti haft þýðingu fyrir fólk í háskólanámi sem verður fyrir slysi, hvort sem er í umferðinni eða á skemmtunum eins og þessari. Vísir/Hulda Margrét Tryggingafélagið Vörður þarf að greiða konu á þrítugsaldri tæpar 6,75 milljónir króna vegna varanlegrar örorku eftir umferðarslys. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði og töldu að ekki hefði verið sýnt fram á að konan væri komin nógu langt í námi til að miðað yrði við laun tanntækna í dag í stað lágmarkslauna við útreikning bóta. Athygli vekur að samkvæmt gildandi skaðabótalögum er miðað við lágmarkslaun eins og þau voru árið 1999.
Hæstiréttur sneri við dómi Landsréttar í gær en málið má rekja til þess þegar kona slasaðist í umferðarslysi árið 2019. Ágreiningur hennar við Vörð snerist um hvort miða ætti bætur við lágmarkslaun samkvæmt skaðabótalögum eða líkleg framtíðarlaun konunnar sem tanntæknir. Konan var 26 ára þegar slysið varð í Rjúpufelli í Breiðholti að kvöldi 5. október 2019. Þá var bíl ekið aftan á annan bíl sem hafnaði svo á bílnum sem konan var í. Hún hlaut tognun á hálsi, brjóstbaki og vinstra axlarsvæði. Við mat á líkamstjóni hennar árið 2022 var varanlegur miski metinn sex stig og varanleg örorka sex prósent. Í álitsgerð kom fram að líklegt væri að afleiðingar slyssins hefðu áhrif á vinnugetu hennar og skertu álags- og úthaldsgetu. Vörður gekkst við bótaskyldu vegna slyssins og greiddi konunni á fjórðu milljón króna í bætur vegna miska og örorku árið 2022. Konan gerði þó fyrirvara við launaviðmiðið sem notað var til að reikna bætur fyrir varanlega örorku og höfðaði mál til að fá þær hækkaðar. Lauk námi sjö mánuðum eftir slysið Konan hafði verið í námi í tanntækni þegar slysið varð. Hún hafði ekki haft launatekjur á árunum 2016 til 2019, meðal annars vegna þess að hún var í langtímameðferð vegna fíknisjúkdóms og fór í meðferð við átröskun. Tanntækninám við skólann var alls 203 einingar. Samkvæmt gögnum frá kennslustjóra skólans sem lögð voru fram hafði konan lokið 98 einingum þegar slysið varð. Hún hélt þó áfram náminu eftir slysið og lauk því vorið 2020 eða um sjö mánuðum síðar. Hún hefur starfað sem tanntæknir frá febrúar 2023. Konan taldi að við útreikning örorkubóta ætti að miða við meðaltekjur tanntækna fremur en lágmarkslaun. Héraðsdómur féllst á þá kröfu í október 2024, en Landsréttur sneri niðurstöðunni við í nóvember 2025 og sýknaði Vörð af frekari greiðslukröfu. Hæstiréttur komst að annarri niðurstöðu. Meirihlutinn taldi að konan hefði þrátt fyrir allt verið komin meira en hálfa leið í náminu, rétt rúmlega hálfa leið en ekk tæplega hálfa leið, þegar slysið varð, námsframvinda hennar hefði verið eðlileg bæði fyrir slysið og eftir það og hún hefði lokið náminu innan sjö mánaða. Meirihluti réttarins taldi því að konan hefði sýnt nægilega fram á að fyrirsjáanlegt hefði verið að hún lyki náminu og hæfi störf sem tanntæknir. Því væri rétt að meta árslaun hennar sérstaklega við útreikning bóta. Um nokkuð sögulega niðurstöðu er að ræða í málum þegar námsmenn verða fyrir slysi. Lágmarkslaunaviðmið úrelt Hæstiréttur fjallaði einnig um þróun launaviðmiðs í skaðabótalögum. Þar kom fram að lágmarkslaunaviðmið laganna hefði fjarlægst raunverulegar tekjur launafólks í vaxandi mæli frá því að núverandi regla var lögfest árið 1999. Í máli konunnar hefðu lágmarkslaun samkvæmt ákvæðinu numið um 3,42 milljónum króna á ári. Hefðu þau hins vegar fylgt almennri launaþróun frá árinu 1999 hefðu þau numið um 6,69 milljónum króna. Hæstiréttur vísaði til fyrri dóms síns frá árinu 2023 er varðaði lágmarkslaun og taldi að við þessar aðstæður yrði að gera minni kröfur til sönnunar tjónþola á því að annað tekjuviðmið væri réttara. Vörður hefði ekki bent á annað viðmið sem væri líklegri mælikvarði á framtíðartekjur konunnar en meðaltekjur tanntækna. Tveir dómarar ósammála Tveir af fimm dómurum, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson, skiluðu sératkvæði og vildu staðfesta dóm Landsréttar. Þeir töldu að leggja yrði til grundvallar að konan hefði samkvæmt upplýsingum frá skólanum aðeins lokið 98 af 203 einingum námsins þegar slysið varð, eða um 48 prósentum þess. Þeir bentu á að samkvæmt fyrri dómum Hæstaréttar hefði almennt þurft að vera lengra komið í námi til að telja námslok fyrirsjáanleg. Var meðal annars vísað til dóms 2016 þar sem bætur nemanda í hjúkrunarfræði sem hafði lokið 52,5% þegar hann varð fyrir slysi voru miðaðar við lágmarkslaun. Var það þrátt fyrir að skólinn benti á að 90 prósent líkur væru á því að nemendur sem hefðu lokið svonefndu „samkeppnisprófi“, eins og nemandinn hafði gert, lyku námi. Í sératkvæðinu var jafnframt lögð áhersla á að dómurinn frá 2023 um lágmarkslaun breytti ekki þeirri dómaframkvæmd sem gilt hefði um námsmenn. Þótt lágmarkslaunaviðmið skaðabótalaga hefði fjarlægst raunveruleg laun væri það verkefni löggjafans að breyta lögunum ef þörf væri á því. Meirihluti Hæstaréttar féllst hins vegar á kröfu konunnar upp á 6,7 milljónir króna auk vaxta og dráttarvaxta, að frádreginni fyrri greiðslu tryggingafélagsins að fjárhæð 3,2 milljónir króna. Verði var jafnframt gert að greiða samtals 3,45 milljónir króna í málskostnað á öllum dómstigum, sem rennur í ríkissjóð.
Dómsmál Tannheilsa Tryggingar Skóla- og menntamál Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Fleiri fréttir Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira