Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar 15. október 2026 12:00 Í næstu viku evrópska vinnuverndarvikan, sem er í ár helguð geðheilsu á vinnustöðum. Geðheilsa hefur sjaldan verið jafn mikið í umræðunni og nú, og er ástæða til þar sem mikilvægt er að minna reglulega á bjargráð, áherslu á grunnþarfir og hvenær rétt er að leita sér hjálpar. En í allri þessari umræðu gleymist oft staður þar sem flest okkar verja stórum hluta vökutímans: vinnustaðurinn. Vinnan hefur áhrif á heilsu Geðheilsa er nefnilega ekki einkamál. Hún mótast af persónulegum aðstæðum, en líka af því hvernig vinnan okkar er skipulögð, hvaða kröfur eru gerðar og hvaða stuðning við fáum til að mæta þeim. Þetta er hægt að hafa áhrif á og þar kemur vinnustaðurinn við sögu. Vinnuverndarlöggjöfin er skýrari en mörg gera sér grein fyrir. Hún gerir ráð fyrir að atvinnurekandi tryggi öryggi og góðan aðbúnað og að starfsfólk fái nauðsynlega kennslu og þjálfun. Hún nær líka til skipulags vinnu og álags. Í umræðunni um vinnuvernd er hins vegar oft hugsað um það sem hægt er að sjá og mæla í líkamlegri heilsu, húsnæði og búnaði. Skipulagið og samskiptin eru ósýnilegri, en hafa síst minni áhrif. Krefjandi vinna og góður vinnustaður getur farið saman Vinnusálfræðin hefur lengi bent á einfalda en áhrifaríka hugmynd, það er jafnvægið milli krafna og auðlinda. Miklar kröfur þurfa alls ekki að vera skaðlegar. Þær geta orðið það þegar fólk hefur lítið um verkefnin sín að segja, fær litla eða enga endurgjöf eða finnur ekki stuðning þegar á reynir. Sjálfræði, stuðningur, skýr hlutverk og tækifæri til að þróast eru verndandi auðlindir sem auka um leið ánægju í starfi. Eitt atriði er oft misskilið, því þróun í starfi þarf ekki að þýða stöðuhækkun. Starfsfólk getur vaxið án þess að titillinn breytist, með dýpri ábyrgð, fjölbreyttari verkefnum eða meiri áhrifum á eigin vinnu, og slíkur vöxtur er auðlind sem ætti að standa öllum til boða. Þessir þættir eru því ekki persónueinkenni. Þeir eru niðurstaða skipulags, ákvarðana og stjórnunar, og því er hægt að endurhanna þá og bæta. Skipulagið verður sjaldnast til af sjálfu sér heldur mótast það í daglegum ákvörðunum stjórnenda. Stjórnendur þurfa líka þjálfun Stjórnendur ákveða hvernig verkefnum er skipt, hvaða endurgjöf er veitt og hvort fólk fær svigrúm til að hafa áhrif á eigin vinnu. Til þess þurfa þeir þekkingu og færni. Það er ekki mjög langt síðan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælti í fyrsta sinn með þjálfun stjórnenda í leiðbeiningum sínum um geðheilsu á vinnustað, en reynsla okkar sýnir að slíkt er lykilþáttur. Þjálfunin á þó ekki bara við um stjórnendur. Starfshópurinn þarf líka fræðslu um færni í samskiptum, endurgjöf og við að leysa ágreining, og það er sá grunnur sem traust byggist á. Traust er góður grunnur Þegar fólk þekkir hlutverk sitt og ábyrgð, og fær fræðslu og þjálfun við hæfi, getur verið einfaldara að treysta því fyrir ákvörðunum. Því meira traust sem starfshópi er sýnt, því meiri líkur eru á frumkvæði, skapandi hugsun og lausnamiðuðum samskiptum. Og þegar eitthvað kemur upp, samskiptahnökrar eða skoðanaskipti sem tilheyra öllum vinnustöðum, er það traust til stjórnenda, og ekki síður til skipulags og boðleiða, sem gerir fólki kleift að eiga samtalið, leita til yfirmanns eða leysa málin sín á milli. Hvað getur vinnustaðurinn gert? Gott er að byrja að skoða hvar kröfurnar eru miklar en auðlindirnar litlar. Næst er að þjálfa stjórnendur og starfsfólk og gefa fólki raunverulegt vald yfir eigin verkefnum, ekki bara þegar eitthvað bjátar á. Og síðast en ekki síst þarf að skýra leiðir til vaxtar og skipuleggja ábyrgð, verkaskiptingu og samskipti þannig að öll viti til hvers er ætlast. Þetta þurfa ekki alltaf að vera flóknar aðgerðir. En þær krefjast þess að við hugsum um geðheilsu sem eitthvað sem vinnustaðurinn mótar, ekki eingöngu það sem hver og einn ber ábyrgð á sjálfur. Við verjum stórum hluta dagsins í vinnunni. Þá á umræðan um geðheilsu líka heima þar. Höfundur er sérfræðingur í vinnuvernd og stjórnendaráðgjafi hjá Auðnast. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun