Skoðun

Trump og Pútín gegn Úkraínu

Arnór Sigurjónsson skrifar

Nú hefur Trump, forseti Bandaríkjanna sýnt sitt rétta andlit. Hann hefur ákveðið að styðja stríðsrekstur Rússa gegn Úkraínu. Zelensky, forseti Úkraínu telur ákvörðun Trumps um olíukaup af Rússum og takmarkanir á gerfitunglafjarskiptum STARLINK-STARSHIELD kerfisins sem notað er í varnarbaráttu landsins gegn skefjalausum loftárásum Rússa gegn orkuinnviðum og íbúðablokkum vera hrein svik við fyrri loforð bandarískra stjórnvalda um járnvæddan stuðning gegn innrás Rússa. Þá hefur forseti Bandaríkjanna kallað eftir því að Zelensky, forseti Úkraínu víki úr starfi að því að hann vill ekki þóknast óskum Trumps um að láta af árásum á rússneskar olíuhreinsistöðvar. Eftirfarandi er það helsta sem skiptir máli:

  • Olíukaup Trumps munu ekki valda neinum merkjanlegum breytingum á framboði díselolíu í Bandaríkjunum, enda magnið takmarkað og fyrir utan 300.000 tunnur, kemur ekki á markað þar fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember, en hátt verð á eldsneyti er talin ein af ástæðum þess að Trump gerir þennan samning við Pútín.
  • Olíukaupin ganga þvert á fyrri stefnu Bandaríkjanna um viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á meðan innrásarstríð þeirra gegn Úkraínu varir. Þær ná til kaupa og innflutnings á olíu og gasi frá Rússlandi. Þangað til nú. Eftir standa Vesturlöndin og ESB sem hafa heitið því að viðhalda þessum efnahagsþvingunum í þeirri von að það knýji Rússa að samningaborðinu í stríði sem er að verða fimm ára gamalt og fer fram í miðri Evrópu með skelfilegum blóðsúthellingum og eyðileggingu mannvirkja.
  • Takmarkanir bandarískra stjórnvalda á aðgangi að hernaðarhluta STARLINK-STARSHIELD gerfitunglafjarskiptakerfisins kemur í veg fyrir að loftvarnir Úkraínu geti starfað sem skyldi og hafa skotflaugaárásir Rússa á úkraínskar borgir sem koma nú án viðvörunar ollið miklum skaða. Drónaárásir úkraínska hersins á rússnesk skotmörk takmarkast við aðeins 160 km hraða og það gefur auga leið að það er ófullnægjandi til að ná tilætluðum árangri.

Spyrja má hvað valdi því að Trump, forseti taki þá ákvörðun að styðja stríðsrekstur Rússa gegn Úkraínu með þessum hætti. Látum bandarísku þingkosningarnar í novémber n.k. liggja á milli hluta. Af hverju leggja Rússum lið á þesum tímapunkti þegar vetur er að ganga í garð og orkuinnviðir Úkraínu eru í rúst og um leið kalla eftir afsögn Zelencky forseta? Nærtækasta skýringin er sú að í olíukaupasamtali Trumps og Pútíns hafi sá síðarnefndi beðið um aðstoð við að koma Úkraínu á kné og forseti Bandaríkjanna ákveðið að verða við þeirri beiðni. Er þá engu skeytt um öryggishagsmuni Evrópu eða samstöðu gegn einræðisríki sem stefnir á yfirráð yfir fyrrum áhrifasvæðumSovétríkjanna.

Það hlýtur að vera íslenskum stjórnvöldum áhygguefni að bandamaður sem þau treysta á að komi Íslandi til varnar ef á okkur er ráðist hagi sér með þessum hætti. Skiptir þá engu máli hvað Rubio, utanríkisráðherra segir í kurteisisheimsókn til landsins eða bandarísk hermálayfirvöld láta frá sér fara – sá sem ræður ferðinni dvelur í Hvíta húsinu. Algjör útvistun íslenskra varna við þessar kringumstæður er stórhættulegt fyrir fullveldi og sjálfstæði Íslands.

Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum.




Skoðun

Sjá meira


×