Innlent

Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ferðamenn voru í miklum vandræðum í Reynisfjöru í gær.
Ferðamenn voru í miklum vandræðum í Reynisfjöru í gær. Aðsend og Vísir/Vilhelm

Landeigendur við Reynisfjöru hafa sett upp keðjur og bönd til að afmarka hversu langt fólk megi fara út á fjörukambinn. Í tilkynningu segir að enn sé nokkuð sjávarstaða í Reynisfjöru og þó svo að veður sé gott sé sjórinn úfinn og liggi hátt.l

Ferðamenn komust í hann krappan í Reynisfjöru síðdegis í gær eftir að stór alda lenti á þeim. Viðbragðsáætlun var í kjölfarið virkjuð í Reynisfjöru vegna veðursins. Lokað var fyrir aðgengi að hluta strandarinnar og gæsla komin á vettvang.

„Við biðlum til ferðaþjónustuaðila og leiðsögufólks að brýna fyrir gestum sínum að virða merkingar og fara ekki yfir bönd og keðjur. Hægt er að ganga vestar eftir fjörunni og þar er góður útsýnisstaður yfir stuðlabergið og Reynisdranga,“ segir í tilkynningu frá landeigendum.

Hættulegar aðstæður

Oft og tíðum hefur verið fjallað um hættulegar aðstæður sem geta skapast í Reynisfjöru. Fjöldi myndskeiða er til af ferðamönnum sem lenda í öldunum en landeigendur hafa sett upp viðvörunarskilti í því skyni að vara ferðamenn við hættunum sem kunna að skapast.

Þrátt fyrir það kemur það ítrekað fyrir að ferðamenn fari fram hjá hliðum og viðvörunarskiltum og virði þau að vettugi.

Níu ára gömul stúlka frá Þýskalandi lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í ágúst árið 2025. Einnig lést erlendur karlmaður á áttræðisaldri sumarið 2022 þegar alda hreif hann með sér út í sjó.


Tengdar fréttir

Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru

Klukkan hálf sex í dag voru björgunarsveitir á Suðurlandi boðaðar út vegna karls og konu sem höfðu lent í sjálfheldu í Reynisfjöru.

Hrun úr Reynis­fjalli: „Ansi mikil berg­fylla sem hefur farið þarna niður“

Mikið grjóthrun varð í Reynisfjalli, rétt austan við Hálsanefshelli í Reynisfjöru, einum vinsælasta ferðamannastað landsins, á dögunum. Íbúi í Vík, sem náði drónamyndum frá vettvangi, segir ljóst að grjóthrunið hafi verið mikið og að hrunið hafi úr fjallinu úr um 100 metra hæð þar sem hæst var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×