Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar 16. október 2026 12:17 Ný skýrsla um gervigreind vekur vonir um að íslensk stjórnvöld geti brugðist markvisst við einni mestu tæknibreytingu samtímans. En mikilvægasta spurningin er ekki hvort tillögurnar séu góðar. Hún er hvort einhver fái ábyrgð, fjármagn og heimildir til að hrinda þeim í framkvæmd. Í skýrslunni Gervigreind til góðs, sem kynnt var 9. október, eru 69 tillögur um nálgun stjórnvalda. Þar er menntun og færni sett í forgang, lögð áhersla á íslensku og yfirráð yfir gögnum og kallað eftir markvissri innleiðingu hjá hinu opinbera. Þetta er ekki samþykkt framkvæmdastefna ríkisstjórnarinnar heldur tillögur starfshóps. Sá munur skiptir máli. [1][2] Ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt að koma á fót stýrihópi ráðuneyta um gervigreind. Jafnframt er stefnt að uppfærðri aðgerðaáætlun fyrir árslok. Það er raunverulegt fyrsta skref. En samþykktur stýrihópur er hvorki fjármögnuð framkvæmdaáætlun né sönnun fyrir bættri þjónustu. [2] Fjórum árum síðar kom fyrsta aðgerðaáætlunin! Ísland hefur áður sett fram metnaðarfullar hugmyndir um gervigreind. Stefna Íslands um gervigreind kom út árið 2021. Þar var fjallað um siðferðilega ábyrgð, samkeppnishæfni og menntun. Stefnan tók sjálf fram að útfæra þyrfti framkvæmd, fjármögnun og árangursmælikvarða nánar. [3] Fyrsta aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um gervigreind var síðan kynnt í júlí 2025, um fjórum árum síðar. Hún færði umræðuna nær framkvæmd með 20 aðgerðum og tilgreindri ábyrgð ráðuneyta. [4] Hugsanlega var eitthvað verið gert á milli þessara tímamóta. En röðin sýnir hvers vegna ekki má rugla saman samfellu í stefnumótun og árangri í framkvæmd. Ný áætlun getur verið framför. Hún getur líka verið merki um að fyrri fyrirheit hafi ekki verið nægilega útfærð. Í úttekt OECD á stafrænum stjórnvöldum, sem birtist í júní 2026, var enn bent á annmarka á gagnsæi og sérstöku eftirliti með notkun gervigreindar við opinbera ákvarðanatöku á Íslandi. Viðmið og vilji hafa því ekki sjálfkrafa skilað allri þeirri umgjörð sem þörf er á. [5] Ísland getur getur komið hlutum í verk Það væri jafnframt rangt að afgreiða íslenska stefnumótun sem eina samfellda sögu um aðgerðarleysi. Ísland.is og Stafrænt Ísland sýna að hægt er að byggja upp sameiginlega þjónustu þvert á stofnanir. Stafræna pósthólfið er starfandi þjónusta með lagagrundvöll og skilgreinda ábyrgð. Hér er ekki aðeins um fyrirheit að ræða heldur innviði sem fólk getur notað. [6] Máltækniáætlunin er annað dæmi. Hún hefur skilað opnum málgögnum og tæknilegum verkfærum í samstarfi stofnana, háskóla og fyrirtækja. En í framhaldsáætluninni frá 2024 var jafnframt bent á að fyrirhugaður sjóður til hagnýtingar hefði ekki orðið að veruleika í fyrri áfanga og að tengingin við notkun í atvinnulífi og opinberri þjónustu væri ófullnægjandi. [7] Hér er mikilvægur lærdómur: það er hægt að búa til verðmæta innviði án þess að tryggja að þeir verði nýttir þar sem þeir eiga að gagnast. Líklegt er að það sama geti gerst með gervigreind. Líkön, námskeið og tilraunaverkefni geta orðið til án þess að borgararnir fái betri þjónustu eða starfsfólk nái meiri færni. Vandinn er ekki leystur með skipuriti Nýja skýrslan tekur þennan vanda alvarlega. Hún leggur til ráðherranefnd, sjálfstætt gervigreindarráð, opinbert mat tvisvar á ári og skyldu stjórnvalda til að svara því efnislega. Einnig er lagt til að sameina krafta í upplýsingatækni ríkisins og hefja tvö afmörkuð innleiðingarverkefni með fyrirfram ákveðnum mælikvörðum. [1] Hér er sterkari nálgun en almenn yfirlýsing um að nýta eigi tæknina á ábyrgan hátt. En fyrirkomulagið framkvæmir sig ekki sjálft. Ráð getur bent á vandamál án þess að hafa úrræði til að leysa þau. Stýrihópur getur samhæft umræðu án þess að ráða fjárveitingum. Ráðuneyti getur borið ábyrgð á málaflokki án þess að starfsfólk hafi tíma eða heimildir til að breyta framkvæmdinni. Nærtækt dæmi er frumvarpið um skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins sem lagt var fram árið 2025. Það átti að styrkja heimildir til samræmingar og sameiginlegra innviða. Málið varð ekki að lögum. Á sama ári benti Ríkisendurskoðun á dreifða ábyrgð og skort á heildaryfirsýn yfir upplýsingatæknikaup ríkisins. Greining vandans dugði því ekki til að ljúka lagabreytingunni. [8][9] Starfshópurinn um gervigreind hafði ekki forsendur eða tíma til að kostnaðarmeta tillögur sínar. Því verkefni er vísað til næstu aðgerðaáætlunar. Mjög skiljanlegt eftir aðeins þriggja mánaða vinnu. En það er líka ástæða til að bíða með að lýsa framkvæmdina tryggða. [1] Notkun er ekki það sama og skilningur Menntunarkaflinn er meðal mikilvægustu hluta skýrslunnar. Þar segir hópurinn sér ekki kunnugt um rannsókn sem mælir hversu góða þekkingu Íslendingar hafi á gervigreind. Jafnframt er lagt til víðtækt fræðsluátak fyrir almenning og fólk á vinnumarkaði. [1] Hvernig ætlum við þá að vita hvort það skilar árangri? Fjöldi þátttakenda á námskeiði segir ekki einn og sér hvort fólk hafi lært að greina rangar fullyrðingar, meðhöndla viðkvæmar upplýsingar eða ákveða hvenær þurfi að sannreyna svar. Sjálfstraust í notkun er ekki heldur mælikvarði á dómgreind. Við þurfum grunnmælingu á þekkingu og færni, ekki aðeins könnun á notkun. Fólk þarf að takast á við raunhæf dæmi. Getur það greint trúverðugt en rangt svar? Veit það hvaða upplýsingar á ekki að setja inn í tiltekið kerfi? Skilur það hvenær niðurstöðu vélar þarf að bera undir manneskju? Síðan þarf að mæla aftur. Annars getum við talið þátttakendur en ekki sýnt fram á aukna færni. Sama krafa gildir um opinbera þjónustu. Skýrslan tekur réttilega fram að aðgreina eigi áætlaðan og raunverulegan ávinning. Sparaðar mínútur eru ekki sjálfkrafa betri þjónusta. Hraðari afgreiðsla getur verið framför, en ekki ef mistökum fjölgar eða erfiðara verður að fá rökstuðning og leiðréttingu. [1] Hvað þarf að liggja fyrir eftir eitt ár? Það væri ósanngjarnt að dæma nýútkomna skýrslu misheppnaða áður en stjórnvöld hafa fengið tækifæri til að bregðast við. En það er ekki of snemmt að ákveða hvernig árangur verður metinn. Fyrir árslok ætti að vera ljóst hvaða tillögur ríkisstjórnin tekur upp, hver ber ábyrgð á framkvæmd þeirra og hvaða fjármunir fylgja. Það er ekki nauðsynlegt að samþykkja allar 69 tillögurnar. Nauðsynlegt er að þær sem verða fyrir valinu myndi framkvæmanlega heild. Um mitt næsta ár ættu fyrstu verkefnin að hafa skilgreint upphafsástand, árangursviðmið og fyrirkomulag óháðs mats. Haustið 2027 ætti almenningur að geta séð niðurstöður: hvað hefur batnað, hvað kostaði það og hverjir njóta ávinningsins? Starfshópurinn leggur sjálfur til að innleiðingarverkefnin verði komin í notkun með birtum mælingum á ávinningi fyrir þann tíma. [1] Að mínu mati verður hvorki algjört aðgerðarleysi né heildstæð umbreyting á skömmum tíma. Líklegt er að ráðist verði í einstök verkefni, en hætt er við að umfangsmeiri kerfisbreytingar dragist. Nýja skýrslan á skilið betri örlög en að verða enn ein heimildin í næstu skýrslu. Til þess þarf að fylgja tillögunum eftir með ákvörðunum, fjármögnun og ábyrgð sem hægt er að rekja. Góðar tillögur eru upphaf. En það þýðir lítið að vilja vel ef ekkert verður úr verki. Höfundur er ritstjóri Verðbólguvaktarinnar (verdbolga.net) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun