Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2026 23:01 Leikmenn Como tolleruðu Cesc Fàbregas eftir að þeir tryggðu sér sæti í Meistaradeildinni í vor. EPA/DAVIDE CASENTINI Cesc Fàbregas, þjálfari ítalska liðsins Como, er mjög spenntur fyrir því tækifæri að fá að taka á móti Manchester United í leik riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta annað kvöld.
Fyrrverandi stjarna Arsenal tjáði sig um Manchester United eftir að hafa stýrt liði sínu til 3-1 sigurs gegn Fiorentina í ítölsku deildinni. „Þetta er frábært lið. Fyrir aðeins þremur árum, þegar við vorum í Seríu B, hefði verið óhugsandi að Manchester United kæmi á Sinigaglia-leikvanginn – en á miðvikudag mun einmitt það gerast. Fyrir okkur er þetta draumur sem rætist; við ætlum að grípa tækifærið,“ sagði Cesc Fàbregas. Como hefur aldrei tekið þátt í Evrópukeppni í 119 ára sögu félagsins. Félagið frá Langbarðalandi – sem hefur tvisvar orðið gjaldþrota á síðustu tveimur áratugum – lék í D-deildinni árið 2019. Það sneri aftur í efstu deild Ítalíu í maí 2024 eftir að hafa komist upp um deild í þriðja sinn á sex tímabilum. „Það er stórkostlegt að undirbúa sig fyrir svona dásamlega leiki en við megum aldrei gleyma því að Sería A er það mikilvægasta fyrir okkur,“ sagði Fàbregas. „Fyrir okkur er hver dagur mikilvægt skref í okkar þróun. Við erum nýtt félag – ekki hvað sögu okkar varðar, heldur vegna þess að við byrjuðum frá grunni fyrir þremur árum. Þess vegna verðum við að fara varlega í því hvernig við tökumst á við mjög margar aðstæður.“ Ítalska smáliðið vann fyrsta leik sinn í Meistaradeildinni gegn Leipzig á heimavelli, 4-1, en tapaði 3-2 gegn Feyenoord á útivelli í síðustu viku. Fàbregas viðurkennir að fyrsta tímabil félagsins í Meistaradeildinni verði lærdómsríkt fyrir alla. „Við erum komnir hingað í Meistaradeildina fimm árum á undan áætlun. Meistaradeildin er einstök gjöf sem kom í kjölfar stórkostlegs tímabils í fyrra. Meistaradeildin er erfiðasta keppni sem til er – á hærra stigi en jafnvel heimsmeistaramótið eða Evrópumótið,“ sagði Fàbregas.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Ítalski boltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum Sjá meira