Sport

Þjóð­há­tíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðar­fjörð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá hluta af mannhafinu sem fagnaði Bakgarðsmeistaranum.
Hér má sjá hluta af mannhafinu sem fagnaði Bakgarðsmeistaranum.

Gunnar Lárus Karlsson, sem sló Íslandsmetið í Bakgarðshlaupum með stæl, fékk höfðinglegar móttökur er hann kom heim til sín á Reyðarfjörð í morgun.

Það var engu líkara en allur bærinn væri mættur fyrir utan heimili Gunnars til þess að fagna honum. Leikskólabörn með skilti, lögreglan með blá ljós og mikil gleði. Sjá má upptöku frá beinni útsendingu Eyrarinnar heilsuræktar hér að neðan.

Gunnar Lárus gerði sér lítið fyrir og hljóp 69 hringi og stórbætti Íslandsmet Þorleifs Þorleifssonar sem stóð í 62 hringjum.

Sá er hljóp lengst með honum, Guðjón Ingi Sigurðsson, bar Gunnari vel söguna er þeir hættu loksins að hlaupa í gær.

„Ég veit ekki hvað við vorum marga hringi saman, ég, Gunnar og Gummi. Gunnar í rauninni dró okkur áfram í næturbrautinni þegar við vorum að slá metið hans Þorleifs,“ sagði Guðjón sem bar sigurvegaranum Gunnari Lárusi góða söguna sem leiðtoga lokahópsins. „Við fylgdum honum og gerðum þetta saman þrír.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×