Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Lovísa Arnardóttir skrifar 23. október 2026 06:48 Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir það stundum gleymast að foreldrar þurfa alltaf að eiga í samskiptum eigi þeir börn. Vísir/Anton Brink Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu telur tímabært að endurskoða það hvort að öll mál þar sem ágreiningur er um umgengni við barn í skilnaði eigi að fara í sáttameðferð, sérstaklega ef ofbeldi hefur verið á heimilinu. Hún segir ágreiningsmálum milli foreldra hafa fjölgað hjá embættinu.
Á fjögurra ára tímabili, frá 2019 til 2023, var alls 2.694 málum vísað í sáttameðferð en fyrir þrettán árum var það gert að lagaskyldu sé ágreiningur í skilnaðarferli. Frá þeim tíma hefur því ekki verið hægt að komast hjá slíkri sáttameðferð nema með úrskurði. Árið 2024 skipaði dómsmálaráðherra sifjalaganefnd sem átti að gera tillögu að nýjum hjúskaparlögum og barnalögum. Breyting á hjúskaparlögum er nú á þingmálaskrá dómsmálaráðherra en breytingar á barnalögunum hafa ekki enn komið fram. Í tilkynningu frá ráðuneytinu um vinnu nefndarinnar í júní kom fram að stefnt væri að því að kynna síðarnefndu drögin síðar á þessu ári. Sigríður segir tilefni til að breyta þessu fyrirkomulagi í barnalögum og að nefndin gæti lagt það til. Það séu þó skiptar skoðanir á því hvort að það eigi að afnema skylduna eða ekki. Hún segir embættið hafa í þessum málum, umfram skyldu, verið í miklu og góðu samstarfi við Kvennaathvarfið, Bjarkarhlíð og Stígamót þegar ofbeldismál koma upp hjá því. Auk þess sé það í samtali við barnaverndarþjónustu, lögreglu og sveitarfélögin vegna mála þar sem er ágreiningur eða ofbeldi. Eigi að vera sérstakt ferli í ofbeldismálum Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, sagði nýlega í viðtali að nauðsynlegt væri að verklag í skilnaðarmálum væri endurskoðað og þá sérstaklega í sáttameðferð hjá sýslumanni. Þegar þolendur greini frá ofbeldi í lögskilnaðarferli eigi að setja málin í sérstakt ferli og alls ekki í sáttameðferð. Það þurfi að gera áhættumat á gerendum og afleiðingum þess að þeir fái að halda áfram umgengni, fyrir bæði þolendur og börn sem koma að málinu. Sigríður segir sýslumannsembættið hafa það sem reglu að ef fólk vill ekki koma saman í sáttameðferð þá komi það hvort í sínu lagi. „Fólk er aldrei þvingað í sameiginleg viðtöl,“ segir Sigríður. Hún segir málum þar sem er ágreiningur að fjölga og ítrekar að það sé ekki ofbeldismál, heldur ágreiningur. „Það er mjög alvarlegt að ágreiningsmálum vegna barna sé að fjölga. Foreldrar hafa skyldur gagnvart sínum börnum.“ Heldurðu að það sé eitthvað í samfélaginu sem valdi þessu? „Fólk getur ekki náð samkomulagi. Það heldur alltaf að það sé að tapa og vill fá úrskurð. En „betri er mögur sátt en feitur dómur“ eins og sagt er nú. Þú verður að semja vegna þinna barna. Þetta verður aldrei fullkomið en þið eigið börn saman,“ segir hún og ítrekar að þarna sé hún ekki að tala um mál þar sem ofbeldi hefur verið á heimilinu. Meðferð sem er samkvæmt lögum Það sé þannig að samkvæmt lögum eigi fólk að koma í sáttameðferð sé ágreiningur um börn eða barn í skilnaði. Í slíkri meðferð sé gert samkomulag sem báðir foreldrar eigi aðild að. „Ef það verður til samkomulag um umgengni í sáttameðferð er það samkomulag sem foreldrar gera. Það er ekki úrskurður frá sýslumanni, það er samkomulag foreldra. Ef það verður ekkert samkomulag og verður sáttameðferðin svokölluð árangurslaus,“ segir hún og að það sé óskað eftir úrskurði frá sýslumanni um umgengni sé slíkur úrskurður gefinn út. Þá séu þrír valmöguleikar í boði. Það geti verið úrskurðað um að umgengni sé með ákveðnum hætti, að það sé engin umgengni eða að hún sé undir eftirliti. Hún segir að í slíkum málum sé það skylda þeirra að taka tillit til 46. greinar barnalaga. Þar er kveðið á um að barn eigi rétt á því að umgangast með reglubundnum hætti það foreldri sem það býr ekki hjá sé það ekki andstætt hagsmunum þess. Oftar árangurslaus sáttameðferð Eins og fram kemur að ofan var á fjögurra ára tímabili, frá 2019 til 2023, 2.694 málum vísað í sáttameðferð hjá sýslumanni. Samkvæmt samantekt sýslumannsembættisins lauk 1.478 þeirra með útgáfu sáttavottorðs um árangurslausa sáttameðferð (55%) en 1.216 málum (45%) lauk með öðrum hætti, meðal annars með samkomulagi milli aðila. Tölfræðiupplýsingar um sáttameðferð Tölfræðiupplýsingar um sáttameðferð á árunum 2019 til og með 2023 Í samantektinni kemur einnig fram að í málum vegna skilnaðar og sambúðarslita sé árangurinn enn meiri, þar sem um 60 prósent mála ljúka með öðrum hætti en útgáfu sáttavottorðs um árangurslausa sáttameðferð. Þar kemur einnig fram að embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sinni árlega um 3.500 málum sem varða fjölskyldur og þar af fara um 650 mál árlega til teymis sérfræðinga í málefnum barna. Um 90 prósent þeirra mála eru sáttameðferðir samkvæmt 33. gr. a barnalaga. Ekki sérstök skráning á ofbeldi Samkvæmt svörum embættis sýslumanns eru upplýsingar um ofbeldi skráðar í mál eins og aðrar upplýsingar „sem skipta máli við meðferð þess“. Ekki er þó sérstök skráning í málaskráarkerfi sem leyfir þeim til dæmis að kalla slíkar upplýsingar fram í tölfræðilegum tilgangi. Upplýsingar liggi fyrir í hverju máli fyrir sig og séu aðgengilegar þeim starfsmönnum sem vinni við málin. Þegar upplýsingar um ofbeldi liggi fyrir og máli er vísað í sáttameðferð sé sáttamanni þó sérstaklega gerð grein fyrir þeim upplýsingum svo hann geti tekið tillit til þeirra í meðferð málsins. Samkvæmt svörum fá slík mál forgang hjá embættinu. „Áður en sáttameðferð hefst er haft samband við hvort foreldri fyrir sig og þeim gerð grein fyrir fyrirkomulagi sáttameðferðarinnar. Þá er sérstaklega áréttað að foreldrar þurfi ekki að mæta saman og þeim veittar upplýsingar um möguleika á einstaklingsviðtölum,“ segir í svari embættisins. Eftir það séu foreldrar boðaðir hvor í sínu lagi. „Í þessum málum leggur sáttamaður sérstaka áherslu á áfallamiðaða nálgun, skýr mörk í samskiptum, vernd persónuupplýsinga, mat á mögulegum ógnunum og að tryggja öryggi allra sem að málinu koma. Þolendum er jafnframt bent á þann möguleika að hafa stuðningsaðila með sér í viðtöl.“ Umgengni í sáttameðferð byggi á samkomulagi Í svarinu kemur aukinheldur fram að í mörgum tilvikum geti sáttameðferð verið mjög stutt. Sjái annar aðilinn ekki grundvöll fyrir sáttum geti hann lýst þeirri afstöðu á einstaklingsfundi og þegar ljóst sé að sátt náist ekki geti hann lokið sáttameðferð og þá geti hann haldið máli sínu áfram hjá sýslumanni eða fyrir dómstólum. Í svari um það hvort gerðar séu ráðstafanir í umgengni sem er komið á í sáttameðferð þegar vitað er til þess að heimilisofbeldi hafi verið á heimili segir í svari embættisins að það sé mikilvægt að hafa í huga að umgengni sem ákveðin er í sáttameðferð byggi á samkomulagi foreldra sjálfra. Þá er jafnframt bent á að þegar umgengni fari fram með beinni aðkomu sýslumanns, til dæmis undir eftirliti eða vegna annarra lagaskilyrða, séu gerðar ítarlegar ráðstafanir með hliðsjón af aðstæðum barns og foreldra. Reglulegt mat á ofbeldishættu Þá sé meðal annars metið hvort þörf sé á að foreldrar hittist ekki, hve margir starfsmenn þurfi að koma að málinu, hvaða húsnæði henti og hvort aðrar sérstakar öryggisráðstafanir séu nauðsynlegar. Þegar upplýsingar um ofbeldi liggja fyrir séu slíkar ráðstafanir sérstaklega skoðaðar. Þá segir að hjá embættinu fari við meðferð mála reglulega fram mat á ofbeldishættu. Slíkt mat nýtist bæði varðandi öryggi skjólstæðinga embættisins og starfsfólks. Þá er einnig bent á að sýslumanni beri samkvæmt 47. gr. barnalaga að leggja mat á hættu á að barn, foreldri eða aðrir á heimili barns hafi orðið eða verði fyrir ofbeldi. Slík hætta vegi því þungt við ákvarðanir um umgengni. Ekki munur á að verða fyrir og vera vitni að Sigríður segir alla flóruna hjá þeim í þessum málum. Stundum sé það þannig að þó svo að foreldrar geti ekki náð saman geti þau bæði sinnt sínu barni vel. Það geti verið deilur á milli foreldra eða ofbeldi á heimili án þess að barnið sé beitt ofbeldi. „En auðvitað er það viðurkennt í fræðunum að barn sem verður vitni að ofbeldi, það í sjálfu sér verður fyrir ofbeldi,“ segir Sigríður. En það sem kemur fram í viðtalinu við Jennýju er að í þessum tilfellum misnoti ofbeldismenn aðstöðu sína í sumum tilfellum? Samskipti sem eigi að vera aðeins um barn séu allt annað og miklu meira en það. „Það er kannski eitt sem gleymist. Foreldrar þurfa alltaf að eiga samskipti ef fólk á barn saman og við reynum allt hvað við getum til þess að umgangast alla þessa aðila sem þarna koma að málinu af virðingu. Það er ekkert gert nema hagsmunir barnsins séu þeir að barnið eigi að umgangast báða foreldra sína.“ Hún segir að í þeim tilvikum þar sem ágreiningur og ofbeldi eru reyni embættið að hafa málsmeðferðina eins stutta og hægt er. Að annar aðili fái ekki tækifæri til að draga meðferðina á langinn og það séu mörg tækifæri til að nota kerfið til að gera það. Umgengni sé stjórnsýslumeðferð og það sé líka alltaf hægt að taka mál upp aftur og aftur. Sumir ofbeldismenn reyni að nýta sér það reglulega en hún segir að innan embættisins sé miðað við að taka ekki mál upp aftur með of stuttu millibili. „Við erum algjörlega meðvituð um þetta allt saman og reynum að hjálpa aðilum að komast út úr þessu ástandi.“ Hún segir þau hafa ýmis úrræði og komi til dæmis beiðni um úrskurð um umgengni þá geti þau óskað eftir því að aðstæður barnsins séu skoðaðar og aðstæður beggja foreldra. Það sé einnig skoðað hvort foreldrarnir hafi tækifæri til að umgangast barnið og hvort aðstæður séu góðar. „Við förum á heimilið og gerum úttekt og ef barn er orðið það þroskað þá fær það að tjá sig, og barn getur alveg óskað sjálft eftir viðtali við okkur og það eru nokkur börn sem gera það alltaf.“ En komist þið líka að niðurstöðu þar sem það eru ekki hagsmunir barnsins að umgangast báða foreldra sína? „Það hefur verið úrskurðað um það að það sé engin umgengni,“ segir hún og að slíkur úrskurður hafi verið staðfestur af ráðuneytinu. Hún segir þetta þó sjaldnast niðurstöðuna. „Það sem þarf líka að passa upp á, finnst mér, í þessum erfiðu samskiptum, og það er eitthvað sem þyrfti að spyrja ráðherra og Alþingi um, er hvort það séu alltaf hagsmunir barnsins að fara í sáttameðferð? Þessi lagaskylda að fara í sáttameðferð, er hún til hagsbóta fyrir alla aðila?“ Sérstakur dómstóll Sigríður segir að í öðrum löndum sé það þannig að ef það er ofbeldi þá sé ekki farið í sáttameðferð, til dæmis í Finnlandi. Hún segir að í Finnlandi sé kerfið öðruvísi, þar sé sérstakur sáttadómstóll. Íslenska kerfið sé að norrænni fyrirmynd og í Danmörku sé eitthvað sem kallast familieretten og þar séu þessi mál unnin. Á Íslandi séu málin hjá sýslumanni. Sú breyting hafi verið gerð 2013 og það sé rétt að skoða núna hvernig það hafi gengið og hvort það sé rétt að halda því áfram. Meiri árangur af sáttameðferð þegar fólk hefur búið saman Hún segir árangurinn af sáttameðferðinni meiri þegar fólk hefur búið saman og er að skilja. Þá ljúki um 60 prósent mála með samkomulagi og þar hafi til dæmis gagnast vel úrræði sem kallast Samvinna eftir skilnað því fólk verði að vita að það þurfi alltaf að eiga í samskiptum. Sigríður segist hlynnt því að það sé skoðað vel hvort það sé rétt að sáttameðferð sé ávallt skylda ef foreldrar eru í ágreiningi. „Ég tel það rétt að skoða það mjög alvarlega hvort að það sé rétt að sáttameðferð sé lagaskylda.“
Börn og uppeldi Heimilisofbeldi Stjórnsýsla Ofbeldi gegn börnum Fjölskyldumál Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira