Lífið

Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Þessi smáhestur var ekki í verslunarmiðstöðinni.
Þessi smáhestur var ekki í verslunarmiðstöðinni. Finnbarr/Getty

Tveir smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð í Sjanghæ í Kína fyrir helgi. Vegtálmum var komið upp til að tryggja öryggi fólks á meðan hestarnir ráfuðu um en þeir voru gómaðir fyrir rest.

Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þeir fluttir á brott með stórum bíl. Töluverð umferð var á svæðinu enda verslunarmiðstöðin vinsæl. Hestarnir dvelja alla jafna ekki í verslunarmiðstöðinni en þeir voru þar fyrir helgi í auglýsingaskyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.