Erlent

Þúsund hand­teknir og tára­gasið hvergi sparað

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Táragasi var beitt í öllum hornum landsins.
Táragasi var beitt í öllum hornum landsins. Getty

Hundruð þúsunda hafa tekið þátt í mótmælum víðs vegar um Frakkland í dag. Franska innanríkisráðuneytið telur um 410 þúsund hafa komið saman en verkalýðssambandið CGT segir þátttakendur hafa verið nær 800 þúsund.

Í París telur lögregla 110 þúsund hafa tekið þátt en CGT segir þá hafa verið um 250 þúsund. Opinbera talan fyrir landið allt er lægri en um síðustu helgi en þá töldu stjórnvöld um 550 þúsund hafa mótmælt.

Að sögn Laurent Nuñez innanríkisráðherra voru þúsund hið minnsta handteknir í mótmælum dagsins. 

Mótmælin í dag eru liður í öldu fjölmennra útifunda sem hófst meðal framhaldsskólanema vegna slæms ástands á skólabyggingum, skorts á kennurum og fjárskorts í menntakerfinu. Síðan hafa verkalýðsfélög, gulvestungar og aðrir hópar bæst við og beinast kröfurnar nú einnig að hækkandi framfærslukostnaði, ójöfnuði og niðurskurði í opinberri þjónustu.

Átök brutust út í París undir lok göngunnar

Meginhluti göngunnar í París fór friðsamlega fram samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpinu en átök brutust út þegar hún nálgaðist endastöð sína við Porte de Vincennes síðdegis.

Mótmælahreyfingin sameinar alls konar óánægjuraddir.Getty

Lögregluyfirvöld í París segja að meira en 500 „skemmdarvargar“ hafi ráðist gegn lögreglumönnum á Cours de Vincennes. Mótmælendur köstuðu hlutum að lögreglu sem svaraði með táragasi og vatnsbyssum.

Mótmælendur í París sem ræddu við breska ríkisútvarpið segjast ætla að halda mótmælunum áfram þar til Emmanuel Macron forseti bregðist við kröfum þeirra. Sumir þeirra segja deiluna nú ekki aðeins snúast um menntakerfið heldur einnig um ójöfnuð, framfærslukostnað og réttinn til að mótmæla.

Missti fingur í Toulouse

Áflog hafa einnig orðið í Toulouse, Marseille, Lyon, Nantes, Grenoble, Strasbourg, Lille og fleiri borgum um allt landið. Í Toulouse slasaðist einn mótmælandi mjög alvarlega á hendi undir lok göngunnar.

Sjúkraliði sem aðstoðaði manninn sagði við fréttaveituna AFP sem Le Parisien vitnar í að hann hefði misst nokkra fingur þegar sprenging varð skammt frá honum. Ekki hefur verið staðfest hvers eðlis sprengingin var.

Tveir mótmælendur hafa þegar misst hönd í mótmælunum síðustu vikur. Fimmtán ára nemandi missti hönd við skóla í Lens 5. október og annar mótmælandi varð fyrir sams konar áverkum í Saint-Étienne 17. október. Notkun lögreglu á hvellsprengjum hefur verið eitt helsta deilumálið í mótmælunum.

Þúsundir brutu gegn banni í Nantes

Í Nantes höfðu yfirvöld bannað mótmæli í miðborginni en þó var fjölmenni á götunum.

Ouest-France telur á bilinu tíu til fimmtán þúsund hafa tekið þátt þegar mest lét. Mótmælendur brutust inn á svæðið þar sem samkomur höfðu verið bannaðar og lögregla beitti táragasi, hvellsprengjum og vatnsbyssum til að dreifa hópnum. Níu höfðu verið handteknir þar síðdegis.

Til átaka kom á Porte de Vincennes í París síðdegis.Getty

Í Rennes gengu um 11.500 manns samkvæmt lögreglu þrátt fyrir bann við samkomum í miðborginni. Táragasi var síðar beitt þar. Í Strasbourg telur lögregla 6.600 hafa tekið þátt en CGT 15 þúsund. Þar myndaðist auk þess óskráð ganga um 1.500 manna og átök brutust út við lögreglu.

Í Marseille telur lögregla 17 þúsund hafa gengið en CGT 50 þúsund. Gangan fór að mestu friðsamlega fram þar til minni hópur reyndi að brjótast í gegnum lögreglulínu við Porte-d'Aix. Lögregla beitti hann táragasi.

Macron kallar eftir stillingu

Macron ræddi í gær í fyrsta sinn beint við fulltrúa mótmælenda úr röðum framhaldsskólanema. Forsetinn sagðist meðal annars telja þörf á grundvallarendurskoðun á Parcoursup-kerfinu, sem notað er við inntöku í háskóla.

Nemendahreyfingarnar sögðu fundinn þó ekki nægja og hvöttu til áframhaldandi mótmæla. Þær eiga að funda með Sébastien Lecornu forsætisráðherra á mánudaginn.

Mikill fjöldi mótmælti einnig á götum Brussel, Mílanó og Tírönu höfuðborgar Albaníu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×