Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 28. október 2026 10:31 Hvers vegna bíðum við eftir að eldra fólk missi heilsuna og sjálfstæðið áður en við veitum því nauðsynlegan stuðning? Hvers vegna er stuðningur við Bjartan lífsstíl með sólarlagsákvæði gagnvart LEB í stað þess að líta á verkefnið sem rísandi sól fyrir eldri borgara Íslands? Hvers vegna nýtum við ekki betur félög eldri borgara um allt land til að hjálpa fólki að lifa lengur sjálfstæðu, virku og gefandi lífi? Þessar spurningar leituðu á mig eftir tvo nýlega fundi. Annars vegar kaffifund Öldungaráðs Viðreisnar með Steinunni Þórðardóttur, öldrunarlækni og formanni Læknafélags Íslands, og hins vegar fund með Landssambandi eldri borgara (LEB). Á báðum fundum kom fram hversu mikilvægt er að hugsa heildstætt um heilsu, lífsgæði og þjónustu við eldra fólk. Sólarupprisuverkefni – ekki sólarlagsverkefni Við höfum þegar lagt mikilvægan grunn að heilsueflingu eldra fólks, meðal annars með verkefninu Bjartur lífsstíll. Á fundi okkar með LEB kom fram að fjárhagslegur stuðningur við verkefnið væri með sólarlagsákvæði. Það vekur furðu. Á sama tíma og eldra fólki fjölgar og þörfin fyrir heilsueflingu verður sífellt meiri er hætta á að stuðningur við mikilvægt verkefni falli niður. Í stað þess að horfa til sólarlags eigum við að líta á Bjartan lífsstíl sem rísandi sól fyrir eldri borgara Íslands. Við eigum að nýta þekkinguna og reynsluna sem þegar hefur skapast, mæla árangurinn og þróa verkefnið áfram í takt við þarfir eldra fólks um allt land. Félög eldri borgara – vannýttur styrkur Við eigum öflugt félagslegt net sem við gætum nýtt miklu betur: félög eldri borgara um allt land. Þau þekkja nærumhverfið, fólkið og aðstæðurnar. Þau geta verið mikilvægir tengiliðir við þá sem þurfa hvatningu, félagslegan stuðning eða aðstoð við að finna heilsueflingarúrræði. Ríki og sveitarfélög ættu að styðja félögin betur til að sinna þessu hlutverki. Með samstarfi við heilsugæslu, íþróttafélög og aðra þjónustuaðila mætti byggja upp öflugt net heilsueflingar og félagslegrar virkni. Sumir þurfa aðeins hvatningu til að byrja að hreyfa sig. Aðrir þurfa einstaklingsmiðaða þjálfun, endurhæfingu eða stuðning til að komast út úr félagslegri einangrun. Það nægir ekki að bjóða þjónustu og vona að fólk nýti hana. Við þurfum að ná til fólks, hvetja það og fylgja því eftir. Við þurfum að styðja og hjálpa fólki áður en heilsan og sjálfstæðið fara að bresta. Tuttugu milljónir á ári – eða fleiri góð æviár? Hugsum okkur 78 ára konu sem býr ein. Hún finnur að styrkurinn minnkar, jafnvægið versnar og hún fer sjaldnar út. Smám saman dregur úr félagslegri þátttöku og lífsgleði. Með styrktar- og jafnvægisþjálfun, félagslegum stuðningi og viðeigandi heimaþjónustu gæti hún haldið áfram að búa sjálfstætt, hitta vini sína og taka virkan þátt í samfélaginu. Það eru lífsgæðin sem skipta mestu máli. En fjárhagslegi ávinningurinn getur líka verið verulegur. Í umræðu um hjúkrunarheimili hefur verið miðað við að heildarkostnaður við eitt hjúkrunarrými geti numið um 20 milljónum króna á ári. Ef markviss heilsuefling og stuðningur gera 100 einstaklingum kleift að fresta hjúkrunarheimilisvistun um eitt ár samsvarar það tveimur milljörðum króna í árlegum kostnaði við slík rými. Það er ekki sjálfkrafa tveggja milljarða sparnaður. Draga þarf frá kostnað við stuðningsþjónustuna og meta áhrifin á raunverulega þörf fyrir hjúkrunarrými. Dæmið sýnir hversu miklu skiptir að fjárfesta fyrr í heilsu og sjálfstæði fólks. Hér er verkefni fyrir árangursríka stjórnsýslu Í kynningu Steinunnar kom fram að hér á landi hefði ekki verið lögð nægileg áhersla á fjölbreytt þjónustuúrræði fyrir eldra fólk. Við þurfum að efla forvarnir, heimaþjónustu, endurhæfingu og félagslega virkni. Hjúkrunarheimili eru nauðsynleg fyrir þá sem þurfa umfangsmikla umönnun, en þau eiga ekki að verða lausnin þegar önnur úrræði skortir. Árangursrík stjórnsýsla snýst um að setja skýr markmið, nýta þekkingu og fjármuni vel og mæla árangurinn. Hversu margir halda sjálfstæði sínu lengur? Hversu margar sjúkrahúsinnlagnir má fyrirbyggja? Hvernig þróast lífsgæði og heildarkostnaður samfélagsins? Við eigum að svara þessum spurningum með gögnum og nýta niðurstöðurnar til að bæta þjónustuna. Stjórnvöld þurfa nú að tryggja áframhaldandi stuðning við LEB vegna Bjarts lífsstíls, þróa verkefnið áfram og tengja það markvisst við félög eldri borgara um allt land. Við eigum að byggja á þeim grunnum sem nú eru til. Markmiðið er ekki aðeins að spara peninga, heldur að hjálpa fólki að lifa sjálfstæðu, virku og gefandi lífi eins lengi og mögulegt er. Þegar okkur tekst það, bætum við lífsgæðin í fleiri ár og um leið drögum við úr kostnaði samfélagsins. Höfundur er formaður Öldungaráðs Viðreisnar, viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun og kennir Qigong – lifsraekt.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Eldri borgarar Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun