Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar 28. október 2026 11:32 Í rannsókninni „Börn og netmiðlar“ kemur fram að um 60% barna og ungmenna á aldrinum 9-18 ára segjast hafa fengið kennslu um örugga netnotkun. Af þeim voru á bilinu 75-80% sem sögðust hafa fengið slíka fræðslu hjá foreldri. Þessar niðurstöður undirstrika vel hversu mikilvægu hlutverki foreldrar gegna í að fræða börnin sín um netið. Ábyrgð foreldra er sannarlega mikil en hversu vel erum við að styðja við foreldra í að sinna þessu mikilvæga fræðsluhlutverki? Samtal um netið, samfélagsmiðla, algóritma, tölvuleiki o.fl. getur verið flókið og framandi þegar að við sjáum ekki sama efnið, spilum ekki sömu leikina (ef einhverja yfir höfuð) og tölum ekki við sama fólkið á netinu. Munum að við þurfum ekki að vita öll svörin áður en við opnum á samtalið. Það sem er mikilvægast er að við sýnum áhuga, séum til staðar, hlustum og þorum að spyrja. Markmiðið er ekki að eiga eitt stórt samtal um netið þar sem við afgreiðum allt á einu bretti. Mun mikilvægara er að koma því inn í hversdagslega rútínu að eiga reglulega samtöl um það sem við sjáum og upplifum á netinu. Það þarf ekki alltaf að vera fræðslusamtal þar sem við reynum að leysa vandamál. Markmiðið er að halda samtalinu opnu þannig að það sé búið að skapa rými fyrir börnin okkar til að stíga inn í og segja okkur frá því sem hvílir á þeim. Við viljum að þau geti leitað til okkar í traustan faðm þegar að eitthvað bjátar ár. Sýnum áhuga Netið er stór hluti af lífi barna og ungmenna. Þar leita þau upplýsinga, spila leiki, eiga í samskiptum, deila efni og skapa. Við foreldrar eigum það til að sýna nethegðun barna áhuga þegar að eitthvað kemur uppá. Það er mikilvægt að horfa ekki bara á netið útfrá hættunum og þessu neikvæða. Samtalið á að vera bæði um þetta góða og slæma. Við spyrjum börnin okkar hvernig gekk í skólanum, á æfingunni eða hvað þau gerðu með vinum. En hversu oft spyrjum við hvað þeim hafi þótt skemmtilegt á netinu? Erum við sífellt að skamma þau fyrir að vera of mikið í tölvuleikjum án þess að hafa nokkurn tímann reynt að spila með þeim eða sýnt því áhuga sem þau eru að gera í leiknum? „Hvað er skemmtilegast við þennan leik?,“ „Við hverja ertu að spila?,“ „Geturðu sýnt mér hvernig þetta virkar?,“ „Hvað ertu að sjá á TikTok eða YouTube núna?,“ „Er eitthvað nýtt sem þú lærðir á netinu, viltu segja mér frá því?“ Þessar einföldu spurningar geta skipt miklu máli. Þær sýna barninu áhuga og hjálpa okkur að skilja betur þeirra veruleika og menningu. Okkur kann að þykja þetta alveg fáránlegt og við skiljum bara ekki með neinu móti hvernig þetta getur verið áhugavert. En foreldrar okkar upplifðu það örugglega oft með okkur þegar að við vorum yngri. Við þurfum ekki að skilja allt til þess að umbera það. Pössum okkur að gera ekki lítið úr áhugamálum barnanna okkar. Heimaverkefni: Leyfum barninu okkar að vera sérfræðingur í einhverju sem það er að sjá eða gera á netinu og látum það kenna okkur. Okkur ætti að líða betur eftir að hafa verið á netinu Alls 26% barna í 5.–7. bekk, 28% í 8.–10. bekk og 25% framhaldsskólanema segjast sammála því að þeim líði betur með sjálf sig þegar þau eru á netinu. Að sjálfsögðu reynum við að draga úr þessu neikvæða og skaðlega eins og ofbeldi, haturstjáningu, stafrænni kynferðislegri áreitni, einelti o.fl. En á sama tíma ættum við að stefna á að efla það sem er jákvætt. Við þurfum að vita hvert við getum leitað þegar að við lendum í vanda, hvernig við tilkynnum ólöglegt efni og þegar að brotið er á okkur, hvernig við blokkum skaðleg samskipti og efni. Á sama tíma þurfum við að vita hvernig við nýtum netið og samfélagsmiðla á okkar forsendum. Þannig að notkunin efli okkur, haldi okkur upplýstum, styrki okkar sjálfsmynd, ýti undir sköpun og hjálpi okkur að líða betur. Það er mikilvægt að horfa á það jákvæða. Um 41% barna í 5.–7. bekk, 57% í 8.–10. bekk og 70% framhaldsskólanema telja að netið hjálpi þeim að verða betri í því sem þeim finnst gaman að gera. Stuðningurinn heima skiptir miklu máli Í fræðslu Netvís, sem nær til þúsunda barna og ungmenna á hverju ári, heyrum við reglulega frá börnum sem lýsa jákvæðri upplifun af netinu. Þar tala þau um mikilvægi þess að finna fyrir stuðningi heima fyrir. Að það hafi einhver sýnt þeim áhuga og átt við þau samtal um hvernig væri hægt að tilkynna, blokka og leita aðstoðar. Þau þurfa einhvern sem hjálpar þeim að skilja að þau geti haft áhrif á eigin upplifun á netinu. Að þau geti valið hverjum þau fylgja, hvaða efni þau skoða, hvernig þau taka þátt í samskiptum og hvernig þau nýta tímann sinn. Við viljum að börnin okkar séu örugg en á sama tíma að þau séu virkir, meðvitaðir og sjálfstæðir þátttakendur sem nota netið á eigin forsendum. Hvað ef eitthvað kemur uppá? Það getur vel komið uppá að barnið okkar fær senda óviðeigandi eða óþægilega mynd, verður fyrir útilokun í hópspjalli, sér eitthvað sem veldur því vanlíðan eða gerir sjálft mistök. Okkar viðbrögð skipta hér miklu máli og geta haft áhrif á hvort barnið þori að leita aftur til okkar eða ekki. Höfum í huga að barn sem segir frá einhverju erfiðu gæti verið hrætt við að: Foreldrarnir verði reiðir eða fari á taugum. Síminn verði tekinn af því. Því verði bannað að spila tölvuleikinn eða nota samfélagsmiðla. Foreldrarnir hafi strax samband við aðra foreldra eða skólann án þess að ræða við það. Málið verði stærra og vandræðalegra en það var áður. Reynum að draga úr hindrunum sem gætu staðið í vegi fyrir því að barn leiti til okkar. Því fyrr því betra. Það á ekki að þurfa að vera komið út í öngstræti. Reynum að lækka þröskuldinn með því að gefa því fullvissu um að þetta verði allt í lagi og að það þurfi ekkert að óttast okkar viðbrögð. Börn munu gera mistök á netinu, rétt eins og annars staðar. Þau geta sent óviðeigandi skilaboð, deilt einhverju án samþykkis eða tekið þátt í samskiptum sem særa aðra. Markmiðið er ekki að afsaka hegðunina heldur að kenna ábyrgð. Hjálpum barninu að skilja hvaða áhrif hegðunin hafði á aðra. Ræðum hvernig hægt er að bæta fyrir mistökin. Reynum að muna eftir því að þakka barninu fyrir að segja okkur frá. Það þarf nefnilega oft mikið hugrekki til þess. Höldum ró okkar – það er eðlilegt að okkur bregði og að við viljum ganga strax í að laga vandann. Pössum reiðina og munum að sýna hlýju og skilning. „Viltu segja mér hvað gerðist?“ og „hvernig leið þér þá?“ Veljum réttar aðstæður - Stundum er gott að fara saman út í göngutúr, spila eða brasa eitthvað saman og ræða málin í rólegheitum. Börn eiga oft auðveldara með að opna sig þegar samtalið er óformlegt og þau finna ekki fyrir pressu. Þetta er samtal en ekki yfirheyrsla - Samtölin þurfa ekki alltaf að vera einhver fræðslufyrirlestur um hætturnar á netinu. Stundum er nóg að hlusta, spyrja og leyfa barninu að segja frá. Þökkum barninu fyrir að segja frá – „Takk fyrir að segja mér þetta. Ég veit að það hefur kannski ekki verið auðvelt.“ Ræðum lausnir saman – Hlustum, hjálpum og leiðbeinum. „Hvað finnst þér að við ættum að gera?“ og „hvernig get ég hjálpað þér?“ Eftirfylgni – Höldum áfram að taka stöðuna og fylgjum málinu eftir. Það getur verið mikið sjokk að lenda í erfiðum aðstæðum og oft koma afleiðingarnar ekki í ljós fyrr en seinna. „Hvernig hefur þér liðið síðan að við töluðum síðast saman?“ Mikilvægasta öryggisstillingin er traustið Við getum ekki alltaf stjórnað því sem börnin okkar upplifa á netinu. En við getum haft mikil áhrif á hvort þau treysta sér til að segja okkur frá því – og hvort þau hafi verkfærin til að bregðast rétt við. Í verkfærakistu foreldra hjá Netvís er að finna fræðsluefni um vinsæla samfélagsmiðla, leiðir til að tilkynna efni, leiðbeiningar um hvernig hægt sé að setja upp fjölskyldustillingar og öryggisstillingar. Það er kannski ekki allt sem maður treystir sér til að segja foreldrum frá. Þá er gott að vita af öðrum einstaklingi í fjölskyldunni, skólanum, félagsmiðstöðinni eða annarsstaðar í umhverfi barnsins sem má leita til. Hjálparsími Rauða krossins og netspjall 1717 stendur öllum til boða, allan sólarhringinn, er ókeypis og trúnaði og nafnleynd heitið. Börn verða að vita hvert þau geta leitað. Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 25 ára af öllum kynjum. Neyðarlínan rekur fræðsluvefinn 112.is Netöryggi þar sem veittar eru upplýsingar og fræðsla um öryggi á netinu og hin ýmis konar stafrænu vandamál Inni á Stopp ofbeldi vefnum finnur þú fræðsluefni um forvarnir og viðbrögð gegn kynbundnu ofbeldi. Þar hefur nýtt efni verið að koma inn í hverri viku í október. Leiðbeinandi skjáviðmið finnur þú inni á Skjárinn og börnin á Heilsuveru. Hérna að lokum er síðan tékklisti fyrir foreldra sem gott er að fara yfir: Ég sýni áhuga á því sem barnið mitt gerir á netinu. Ég spyr reglulega opinna spurninga um netið, tölvuleiki og samfélagsmiðla. Ég hlusta án þess að grípa strax fram í. Barnið mitt veit að það má segja mér frá mistökum. Við höfum rætt hvernig við bregðumst við óþægilegum skilaboðum eða efni. Við höfum skýrar reglur heima sem við byggjum á trausti. Ég reyni að vera góð fyrirmynd. Barnið veit að það getur leitað til mín án þess að vera strax skammað. Við vitum hvert við getum leitað aðstoðar ef eitthvað alvarlegt kemur upp. Höfundur er sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Heimild: Menntavísindastofnun Háskóla Íslands, Börn og netmiðlar 2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Bragi Geirdal Börn og uppeldi Símanotkun barna Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun