Sport

Dag­skráin: Skipti­borðið og risaleikur á Króknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stólarnir fá Álftnesinga í heimsókn í Síkið en bæði liðin eru taplaus í Bónusdeild karla í körfubolta á tímabilinu.
Stólarnir fá Álftnesinga í heimsókn í Síkið en bæði liðin eru taplaus í Bónusdeild karla í körfubolta á tímabilinu. Vísir/Ernir

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum en karfan er í sviðsljósinu.

Fjórða umferð Bónus deildar karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum.

Skiptiborðið mun fylgjast með öllum leikjum í einu og Tilþrifin fara síðan yfir alla leikina strax á eftir.

Risaleikur kvöldsins er á milli Tindastóls og Álftaness í Síkinu á Króknum en bæði liðin hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína. Keflavík fær Hött í heimsókn, stigalaust lið Stjörnunnar tekur á móti ÍR og KR fær nýliða Sindra til sín í Vesturbæinn.

Það verður einnig golfmót á LPGA-mótaröðinni í beinni í nótt.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.10 hefst Skiptiborðið þar sem fylgst verður með öllum fjórum leikjum kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.15 hefjast Tilþrifin þar sem farið verður yfir alla fjóra leiki kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Tindastóls og Álftaness í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Stjörnunnar og ÍR í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik KR og Sindra í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 5

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Keflavíkur og Hattar í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Maybank Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 19.35 hefst bein útsending frá leik Everton og Newcastle í enska deildabikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×