Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 28. október 2026 18:02 Það er löngu tímabært að stjórnvöld taki fátækt barna föstum tökum með skýrri stefnu og aðgerðum sem geta breytt lífi barna og fjölskyldna þeirra. Nú er loksins við völd ríkisstjórn sem hefur ákveðið að taka til hendinni í þessum málum. Baráttan gegn fátækt og félagslegum ójöfnuði hefur frá upphafi verið eitt af grundvallarmálum Flokks fólksins. Fyrir tæpu ári tók mennta- og barnamálaráðherra þá mikilvægu ákvörðun að ráðast í mótun fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlunar Íslands gegn fátækt barna. Mér var falin forysta stýrihópsins sem hefur unnið að verkefninu nær sleitulaust síðan. Auk mín skipa hópinn sérfræðingar mennta- og barnamálaráðuneytisins á þessu sviði. Nú liggur afraksturinn fyrir í þingsályktunartillögu með 14 aðgerðum allt til ársins 2031. Rannsóknir og reynsla fólks Ný skýrsla forsætisráðuneytisins og Háskóla Íslands um þessi mál verður kynnt á málþingi um fátækt barna fimmtudaginn 29. október kl. 8.30 í Veröld – húsi Vigdísar. Skýrslan var unnin samhliða starfi stýrihópsins og niðurstöðurnar ríma vel við áherslur hópsins. Samráðið hefur verið afar víðtækt. Um 30 fundir hafa verið haldnir með fulltrúum sveitarfélaga, félagasamtaka, sérfræðingum og foreldrum sem þekkja fátækt af eigin raun. Auk þess bárust 15 umsagnir um áætlunina í Samráðsgátt stjórnvalda. Ábendingarnar hafa haft áhrif á endanlegar tillögur. Frá orðum til aðgerða Aðgerðaáætlunin byggir á fjórum stoðum. Endurskoða á barnabætur og annan fjárhagslegan stuðning, jafna tækifæri barna til þátttöku í skóla- og frístundastarfi, einfalda aðgang að þjónustu og setja mælanleg markmið um árangur af aðgerðunum. Ekkert barn á að þurfa að sitja hjá vegna þess að foreldrar þess hafa ekki efni á æfingagjaldi, búnaði eða skólaferð. Íbúðahúsnæði er hluti af sömu baráttu Eitt af því sem kom hvað skýrast fram í samráði stýrihópsins var hversu þungt húsnæðiskostnaður leggst á barnafjölskyldur. Þegar stór hluti tekna fer í húsaleigu verður minna eftir fyrir mat, fatnaði og öllu því sem börn þurfa til eðlilegrar þátttöku í samfélaginu. Það er þess vegna ekki hægt að ræða fátækt barna án þess að ræða húsnæðismálin um leið. Þarna tengjast verkefni tveggja ráðherra Flokks fólksins með mjög skýrum hætti. Á sama tíma og Inga Sæland hefur beitt sér fyrir heildstæðri stefnu gegn fátækt barna hefur Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra unnið að því að létta húsnæðisbyrði heimilanna og auka húsnæðisöryggi. Ragnar Þór hefur lagt fram frumvarp um leigubremsu sem á að stöðva mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu þannig að húsaleiga geti einungis hækkað á 12 mánaða fresti sem eykur öryggi og fyrirsjáanleika leigjenda. Alþingi hefur einnig hefur verið samþykkt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um eflingu almenna íbúðakerfisins, með hærri stofnframlögum ríkisins til að fjölga leiguíbúðum á viðráðanlegum kjörum. Þá hafa verið gerðar breytingar á hlutdeildarlánakerfinu til að auðvelda fólki að eignast húsnæði og samið um uppbyggingu fleiri hlutdeildarlánaíbúða og uppbyggingu á ríkislóðum sem hafa lengi staðið auðar. Þetta eru ekki aðskilin verkefni heldur ólíkir þættir í sömu baráttu. Allt þetta bætir afkomu barnafjölskyldna, dregur úr óöryggi í húsnæðismálum og stuðlar að jafnari tækifærum fyrir börn. Baráttunni er ekki lokið Fyrir tilstuðlan Flokks fólksins hefur ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi tekið stór skref til að bæta kjör þeirra sem standa höllustum fæti í samfélaginu. Við látum ekki duga að tala um fátækt barna heldur leggjum fram áætlun um hvernig draga megi úr henni. Næsta skref er að leggja þingsályktunartillöguna fyrir Alþingi. Þar vonast ég til að allir stjórnmálaflokkar geti tekið höndum saman og í stuðningi við þessa tímamóta tillögu. Fátækt barna er ekki einkamál þeirra fjölskyldna sem við hana búa. Hún er samfélagslegt vandamál sem við berum sameiginlega ábyrgð á. Með áætluninni hefur verið lagður fram traustur grunnur til úrbóta. Það er kominn tími til að láta verkin tala. Höfundur er þingkona Flokks fólksins og formaður velferðarnefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Flokkur fólksins Háskólar Börn og uppeldi Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun