Bíó og sjónvarp

Biðjast af­sökunar og kippa um­deildum þáttum úr birtingu

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þættirnir Alle elsker Rasmus er ekki lengur hægt að finna á veitum TV2.
Þættirnir Alle elsker Rasmus er ekki lengur hægt að finna á veitum TV2. EPA/Martin Sylvest

Danska sjónvarpsstöðin TV2 hefur dregið þættina Alle elsker Rasmus, eða Allir elska Rasmus, úr birtingu og beðið téðan Rasmus afsökunar. Þættirnir sættu mikillar gagnrýni og voru höfundar sakaðir um einelti og gaslýsingu. 

Danska ríkisútvarpið og TV2 sjálft greina frá.

Þættirnir fylgja danska grínistanum Rasmus Wallbridge og eru að mestu teknir upp með falinni myndavél. Þá var honum talin trú um að hann tæki þátt í tökum á kvikmynd, sem er hans hinsti draumur. Rasmus lendir í ýmsum hremmingum sem hann telur vera raunverulegar en eru í raun eftir handriti. 

Alls tóku 149 manns þátt í blekkingarleiknum, bæði vinir hans og kunningjar sem og þjóðþekktir einstaklingar. Hefur þáttunum verið líkt við kvikmyndina The Truman Show frá árinu 1998 með Jim Carrey í aðalhlutverki. 

Þættirnir eru umdeildir og sættu mikilli gagnrýni úr ýmsum áttum. Meðal annars líkti sjónvarpsmaðurinn og hlaðvarparinn Anna Linn þáttunum við einelti og að Rasmus hefði ekki endilega fengið frjálst val um hvort að þættirnir færu í birtingu.

„Ég tel þetta vera einelti. Ég trúi því ekki að maður hafi algjörlega frjálst val þegar maður stendur þarna og annaðhvort tekur þátt í gríninu eða fer gegn heilu sjónvarpsteymi,“ hefur DR eftir Önnu.

Biðjast afsökunar og taka þættina úr birtingu

TV2 hefur nú beðist afsökunar og dregið þættina þá úr birtingu vegna gagnrýninnar. Ekki er lengur hægt að nálgast þættina á miðlum stöðvarinnar en aðeins eru fimm dagar síðan þættirnir komu út.

„Ég vil biðja Rasmus Wallbridge og þátttakendur í þættinum „Alle elsker Rasmus“ auðmjúklega afsökunar,“ er haft eftir Dorthe Tirstrup dagskrárstjóra TV2 í fréttatilkynningu. Hún líti á málið sem dómgreindarbrest af sinni hálfu.

„Ég lít í eigin barm og viðurkenni að dómgreind mín brást einfaldlega í þessu máli. Það er sú dómgreind sem allir þátttakendurnir treystu á og mér þykir það afar leitt. Það var röng ákvörðun að gera þáttinn á þann hátt sem við gerðum. Við gættum ekki nógu vel að Rasmusi þrátt fyrir þær vangaveltur sem við höfðum fyrir fram,“ er einnig haft eftir Dorthe. 

Rasmus sjálfur hefur lítið tjáð sig um þættina en rauf þó þögnina í færslu á Instagram í morgun og sagðist ekki í stöðu til þess að ræða málin að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.