Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 08:02 Ríkisstjórnin ætlar að sækja sex til sjö milljarða króna á ári með nýju gjaldi vegna heimsókna á Þingvelli, við Gullfoss og Geysi. Allir þrír staðirnir eru í Bláskógabyggð sem þýðir að heimsóknir í eitt sveitarfélag eiga að fjármagna verkefni um land allt. Það er fráleitt að leggja slíka byrði á sunnlenskt atvinnulíf. Í umræðunni undanfarið hefur ítrekað verið haldið fram að ferðamenn muni greiða gjaldið, ekki íbúarnir. Fyrir heimafólk sem hefur afkomu sína af viðskiptum við þessa sömu gesti er það lítil huggun. Dýrari Íslandsferð getur þýtt styttri dvöl eða færri viðkomustaði sem mun óhjákvæmilega leiða til minni viðskipta. Það mun þá koma niður á fyrirtækjum og starfsfólki þeirra, þótt gjaldið verði einungis innheimt af erlendum gestum. Á Laugarvatni fundu menn fyrir þessum áhrifum þegar Fontana lokaði tímabundið vegna framkvæmda. Þá drógust umsvif líka saman í gistingu, veitingasölu og verslun í nágrenninu. Eitt fyrirtæki getur haft mikil áhrif á rekstrargrundvöll annarra. Það ætti ríkisstjórnin að hafa í huga áður en hún gerir heimsóknir hingað dýrari. Ekki verið að afnema undanþágur heldur hækka skatta Við þetta bætast áform um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Samkvæmt Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga tengjast baðlónum og tengdum rekstri á Suðurlandi yfir 35 milljarða króna fjárfesting og rúmlega 400 heilsársstörf. Fyrir fjölskyldu sem rekur gistihús getur aðdráttarafl baðlónsins í nágrenninu ráðið miklu um hvort hægt sé að hafa fólk í vinnu yfir veturinn og þannig hefur ferðaþjónustan gert fleirum kleift að byggja sér framtíð í sinni heimabyggð. Sveitarfélög hafa einnig lagt fé í uppbygginguna, meðal annars með veituframkvæmdum. Þau hafa tekið á sig skuldbindingar í trausti þess að atvinnustarfsemin dafni. Ríkið verður að taka tillit til þeirra hagsmuna þegar það breytir forsendum rekstrarins. Ársþing SASS hefur nú krafist þess að fallið verði frá sérstöku gjaldtökunni á þessum þremur stöðum. Sú krafa er fullkomlega eðlileg og ríkisstjórnin getur ekki afgreitt áhyggjur sveitarfélaganna með því einu að benda á hver fær greiðslukröfuna. Auðvitað þarf að verja náttúruna og bæta innviði. Góðir vegir og traust vetrarþjónusta eru forsenda heilsársferðaþjónustu. En frumvarpsdrögin um náttúru- og innviðagjald tryggja ekki eyrnamerkingu teknanna til þeirra þriggja staða sem gjaldtakan tekur til. Almenn fyrirheit um uppbyggingu réttlæta ekki að eitt sveitarfélag sé sérstaklega tekið fyrir. Ferðaþjónustan skapar miklar tekjur fyrir þjóðarbúið Stjórnvöld þurfa að sýna hvernig tekjur sem þegar eru innheimtar af ferðaþjónustunni nýtast og forgangsraða þeim til nauðsynlegra framkvæmda. Þau eiga jafnframt að meta samanlögð áhrif nýrra álaga með sveitarfélögum og atvinnurekendum áður en ákvarðanir eru teknar. Fyrirtæki sem hafa selt ferðir og ýmsa þjónustu langt fram í tímann geta ekki breytt samningum sínum jafnóðum og ríkisstjórnin breytir um stefnu. Ferðaþjónustan skapar tekjur fyrir þjóðarbúið allt. Það er því sameiginlegt hagsmunamál landsmanna að fyrirtækin geti haldið áfram að fjárfesta og ráða fólk. Ríkisstjórnin verður að líta lengra en til tekjuáætlunar af hverju nýju gjaldi og horfa líka á áhrifin á viðskiptin sem skatttekjurnar byggjast á. Ég þekki af eigin reynslu hvað felst í að byggja upp fyrirtæki og bera ábyrgð á störfum annarra. Fólk þarf að geta treyst rekstrarskilyrðunum þegar það leggur eigið fé og vinnu í uppbyggingu. Það á líka við um næstu fjárfestingu sem skapar ný störf og auknar tekjur fyrir samfélagið. Við Sjálfstæðismenn munum beita okkur á Alþingi fyrir því að ríkisstjórnin falli frá Bláskógaskattinum og skattahækkunum á baðlón. Það hefur sjaldan verið jafn brýnt og nú að ríkisstjórnin hvetji atvinnulífið til dáða í stað þessa að fella það í dróma. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðrún Hafsteinsdóttir Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun