Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Jakob Bjarnar skrifar 3. nóvember 2026 14:22 Daði Már fjármálaráðherra var fjarri góðu gamni en þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu kröfu um að hann mætti niður í þing, strax í dag, og gerði grein fyrir máli sínu í ljósi þess sem komið hefur á daginn varðandi brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar. vísir/einar Stjórnarandstaðan fór mikinn undir dagskrárliðinum Fundarstjórn forseta og krafðist þess að Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mætti í þingið til að gera grein fyrir máli sínu; hann hafi talað gegn sér betri vitund þegar hann svaraði fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um ástæður þess að Hörður Arnarson sagði starfi sínu sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ára feril.
Guðlaugur Þór Þórðarson Sjáflstæðisflokki hóf umræðuna og sagði það svo að 19. október síðastliðinn hafi hann spurt fjármálaráðherra um hvað hann vissi um tildrög þess að Hörður sagði starfi sínu lausu. Guðlaugur sagði Daða hafa svarað því svo til, með þjósti, að sagan öll væri sögð. Forstjórinn hefði ekki hrökklast úr starfi eftir 17 ára farsælt starf. Nú lægi hins vegar fyrir að svo væri ekki. Og hann krafðist þess af Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis, að hún beitti sér fyrir því að Daði Már mætti til að gera grein fyrir máli sínu, strax í dag. Fjölmargir stjórnarandstæðingar fóru í pontu í umræðu sem stóð í rúman hálftíma. Þeir töldu fulla ástæðu til að ræða þetta betur og nefndu að í ljós hefði komið að starfsmenn fjármálaráðuneytis hafi haldið frá apríl níu fundi með stjórn, án forstjóra. Fram kom í yfirlýsingu stjórnar Landsvirkjunar í gær að Hörður eða staðgengill hans hefðu setið þá fundi með ráðuneytinu þar sem málefni tengd rekstri Landsvirkjunar hafi verið rædd. Jens Garðar Helgason Sjálfstæðisflokki sagði þetta óeðlileg afskipti eiganda og stjórnar. Hann sjálfur hafi átt sæti í stjórn Landsvirkjunar í ár og hann hafi ekki setið einn einasta slíkan fund með starfsmönnum ráðuneytisins eða ráðherra. „Þetta er orðið mjög óeðlilegt.“ Þá vísuðu stjórnarandstæðingar til þeirra orða Harðar að hann óttaðist afskipti stjórnar og að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu. Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki var meðal þeirra sem tók til máls og hann sagði þetta grafalvarlegt mál. Og að nú væri komið á daginn að ráðherra hafi sagt þinginu ósatt, hann hafi talað gegn betri vitund. „Hann greindi þinginu ranglega frá, fjölmiðlum og þar með þjóðinni.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Landsvirkjun Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira