Viðskipti innlent

Julebryg verði mun ó­dýrari

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Tuborg Julebryg nýtur alla jafna mesta vinsælda meðal landsmanna.
Tuborg Julebryg nýtur alla jafna mesta vinsælda meðal landsmanna. vísir/anton brink

Sérstakur Tuborg Julebryg sem bruggaður er í Danmörku verður settur á sölu hér á Íslandi í ár. Forsvarsmenn Santé sem standa að innflutningnum ætla að selja hann á töluvert ódýrara verði.

„Í Danmörku markar Julebryg upphaf jólanna. Fyrsta föstudag í nóvember, klukkan 20:59, kemur hann í sölu um allt land og Danir fagna deginum, sem þeir kalla J-dag, á börum og í heimahúsum. Hefðin hefur haldist frá 1990 og í ár ber J-dag upp á föstudaginn 6. nóvember,“ segir í fréttatilkynningu frá Santé.

Fyrirtækið hyggst setja jólabjórinn á sölu, sem einnig hefur notið töluverðra vinsælda á Íslandi, og selja hann á mun ódýrara verði. Einungis verður hægt að festa kaup á kassa og mun hann kosta rétt rúmar 4300 krónur. Í Vínbúðinni kostar kassinn rétt tæpar 5400 krónur.

„Julebryg er orðinn hluti af jólunum hjá mörgum Íslendingum, rétt eins og hjá Dönum. Okkur fannst sjálfsagt að bjóða hann eins og Danir drekka hann – beint frá Danmörku – og á verði sem munar um,“ er haft eftir Elíasi Blöndal Guðjónssyni, vínkaupmanni og öðrum eigenda Santé, í tilkynningu.

Þar er saga bjórsins vinsæla einnig reifuð en árið 1980 á Tuborg að hafa teiknað jólaauglýsingu fyrir venjulegan pilsner með bláklæddum jólasveini. Auglýsingin varð svo vinsæl að brugghúsið bjó til sérstakan jólabjór fyrir jólin 1981.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×