Enski boltinn

„Ég er ekki Mohamed Salah“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bradley Barcola fagnar marki með Alexander Isak en þessir tveir rándýru framherjar Liverpool eru farnir að finna taktinn.
Bradley Barcola fagnar marki með Alexander Isak en þessir tveir rándýru framherjar Liverpool eru farnir að finna taktinn. EPA/ADAM VAUGHAN

Bradley Barcola, kantmaður Liverpool, hefur sagt frá ástæðunni fyrir því að hann yfirgaf Paris Saint-Germain og hvers vegna hann valdi Liverpool.

Í samtali við Sky Sports viðurkenndi franski kantmaðurinn að hann hefði enn ekki náð þeim hæðum sem hann stefnir að, þrátt fyrir bætta frammistöðu að undanförnu.

„Ég tel mig ekki hafa náð mínu besta enn. Þið hafið ekki séð bestu útgáfuna af mér og við erum líka að vinna með liðsfélögum mínum svo þeir geti nýtt styrkleika mína betur,“ sagði Bradley Barcola.

„Ég held að þegar við náum virkilega að þróa skilninginn okkar á milli muni hlutirnir batna mikið. Mér finnst vera stöðugar framfarir, þar sem leikmennirnir eru farnir að skilja leikstíl minn betur, og ég held að hlutirnir gangi mjög vel,“ sagði Barcola.

Um upphæð kaupverðsins og pressuna sem fylgir því að leysa Salah af hólmi, en hann yfirgaf Liverpool síðasta sumar, tók Barcola skýrt fram að hann finni ekki fyrir neinni skyldu til að fylla skarð Egyptans. „Í fyrsta lagi ákvað ég ekki verðmæti félagaskiptanna minna, svo þetta mál er ekki vandamál fyrir mig,“ sagði Barcola.

Samanburðurinn við Salah kallaði fram ákveðið svar. „Mohamed Salah er goðsögn hér, raunar mjög stór goðsögn. Hann hefur gefið þessu félagi mikið og ég ber gríðarlega virðingu fyrir honum, en ég finn ekki fyrir neinni pressu vegna þess,“ sagði Barcola.

„Ég er ekki Mohamed Salah og ég mun reyna að gefa allt sem ég get til að hjálpa félaginu og setja mitt eigið mark á sögu þess. Ég finn ekki fyrir neinni pressu varðandi þetta mál,“ sagði Barcola.

Hvers vegna þá að yfirgefa PSG eftir alla þá velgengni? Fyrir Barcola var tímasetningin einfaldlega rétt. „Fyrir mig var þetta rétti tíminn til að yfirgefa Paris Saint-Germain. Ég átti yndisleg ár þar og vann gríðarlegan fjölda titla, en tíminn til að fara var kominn,“ sagði Barcola.

Kveðjustundin var samt sár. „Þetta var mjög erfitt, því andrúmsloftið þar var eins og í fjölskyldu. Við byggðum upp eitthvað mjög sérstakt saman og það var erfitt að kveðja liðsfélaga mína, en á endanum er það eðli fótboltans,“ sagði Barcola.

„Þegar félag af stærðargráðu Liverpool hefur samband við þig er það frábært. Ég var ekki í neinum vafa og vissi að ég yrði að koma hingað. Ég er ánægður að vera með liðinu og ég vona líka að Paris Saint-Germain gangi vel,“ sagði Barcola.

Leikur Fenerbahce og Liverpool verður í beinni á Sýn Sport 2 í kvöld og hefst útsendingin klukkan 17.35.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×